• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 3. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Stormviðvörun – ( Gult ástand )

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
8. júlí 2018
in Óflokkað
A A
0

Stormviðvörun – ( Gult ástand )


Frá veðurfræðingi á Veðurstofu Íslands: Í dag og á morgun stefnir í að verði óvenju hvass vindur miðað við árstíma og hafa gular viðvaranir verið gefnar út af því tilefni.  Dagurinn í dag heilsar þó með þurru og tiltölulega rólegu veðri.
Búist er við suðaustan stormi (meira en 20 m/s) í vindstrengjum á Breiðafirði, Vestfjörðum og á Miðhálendinu síðdegis og í kvöld. Einnig má búast við snörpum vindhviðum undir Hafnarfjalli. Heldur hægari vindur um tíma í nótt.

Á mánudag er búist við suðvestan hvassviðri eða stormi með snörpum vindhviðum norðvestantil á landinu og á Miðhálendinu. Ferðalöngum, einkum þeim sem eru á farartækjum sem taka á sig vind, er því bent að fylgjast vel með veðri.
Lægð er stödd við suðurodda Grænlands og þokast hún til norðausturs og sendir okkur rakt loft og stífan vind sem ágerist eftir hádegi. Seint í dag má búast við sunnan strekkingi eða allhvössum vindi með rigningu og súld og enn hvassara staðbundið á vestanverðu landinu í kvöld.
Á Norður- og Austurlandi verður hins vegar hægari vindur í dag og þurrt og bjart veður með hita að 20 stigum þar sem best lætur.
Á morgun snýst síðan í hvassa suðvestanátt og má búast við varasömum hviðum á svæðinu frá Snæfellsnesi norður og austur að Tröllaskaga. Suðvestanáttinni fylgja skúrir, en á austanverðu landinu verður léttskýjað og má búast við að hiti þar fari yfir 20 stig í hnjúkaþey og sólskini.
Frá þriðjudegi og fram eftir vikunni er útlit fyrir rólegri vind, en áttin áfram suðlæg og einhver væta viðloðandi á sunnan- og vestanverðu landinu.

Faxaflói

S 13-20 og snarpar vindhviður undir fjöllum. (Gult ástand)

8 júl. kl. 17:00 – 23:00
S 15-20 m/s og snarpar vindhviður í Hvalfirðinum og undir Hafnarfjalli. Ferðalöngum, einkum þeim sem eru á farartækjum sem taka á sig vind, er því bent að fylgjast vel með veðri.

Breiðafjörður

Stormur (>20 m/s) sunnudagskvöld (Gult ástand)

8 júl. kl. 16:00 – 23:59
SA stormur með snörpum vindhviðum. Á Snæfellsnesi, Skarðsströnd og Gilsfirði. Ferðalöngum, einkum þeim sem eru á farartækjum sem taka á sig vind, er því bent að fylgjast vel með veðri.

Vestfirðir

Stormur (>20 m/s) á sunnudagskvöld (Gult ástand)

8 júl. kl. 19:00 – 23:59
S og SA stormur með snörpum vindhviðum. Lægir nokkuð upp úr miðnætti um tíma. Ferðalöngum, einkum þeim sem eru á farartækjum sem taka á sig vind, er því bent að fylgjast vel með veðri.

Strandir og Norðurland vestra

S stormur með snörpum vindhviðum á Holtavörðuheiði sunnudagskvöld. (Gult ástand)

8 júl. kl. 19:00 – 23:59
S stormur (>20 m/s) með snörpum vindhviðum á Holtavörðuheiði á sunnudagskvöld. Lægir líklega um tíma seinni part nætur. Ferðalöngum, einkum þeim sem eru á farartækjum sem taka á sig vind, er því…

Miðhálendið

SA og síðan SV stormur (Gult ástand)

8 júl. kl. 19:00 – 9 júl. kl. 23:59
SA stormur á sunnudagskvöld og síðan SV stormur á mánudag með snörpum vindhviðum. Ferðalöngum, einkum þeim sem eru á farartækjum sem taka á sig vind, er því bent að fylgjast vel með veðri.

Veðurhorfur á landinu

Vaxandi sunnan- og suðaustanátt í dag, 10-18 m/s vestantil seinnipartinn með súld eða rigningu, sums staðar hvassara í vindstrengjum við fjöll. Hægari vindur á Norður og Austurlandi og bjartviðri. Sunnan 15-23 á norðvestanverðu landinu seint í dag og í kvöld. Heldur hægari um tíma þar í nótt.
Suðvestan 13-23 á morgun, áfram hvassast norðvestantil með snörpum hviðum og einnig á Miðhálendinu. Víða skúrir, en léttskýjað austanlands.
Hiti 10 til 20 stig, hlýjast á Austurlandi.

Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu

Gengur í sunnan 10-15 m/s seinnipartinn með súld og rigningu. Suðvestan 8-15 á morgun og skúrir. Heldur hægari annað kvöld. Hiti 8 til 12 stig.
 
 

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Skrifaði bréf til foreldranna og sagðist vilja deyja í friði

    Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair og krefjast ómerkingar

    31 deilingar
    Share 12 Tweet 8
  • Salmonella í fæðubótarefni

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Laun seðlabankastjóra hækkuðu um 43% – Er með 43 milljónir á ár

    34 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Skrifaði bréf til foreldranna og sagðist vilja deyja í friði

    33 deilingar
    Share 13 Tweet 8
  • Stórbruni í Hafnarfirði

    49 deilingar
    Share 20 Tweet 12
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?