Landsréttur staðfesti í dag dóm yfir konu sem dæmd var í 18 ára fangelsi fyrir að myrða sex ára son sinn og fyrir að reyna að bana eldri syni sínum. Með dómi sínum staðfesti Landsréttur sakhæfi konunnar.
Konan játaði sök í héraðsdómi en hélt því fram að hún hafi verið ósakæf. Ríkisútvarpið birti fyrst frétt af dómnum.
Verjandi konunnar taldi nauðsynlegt að endurskoða þyngd dómsins. Hún sagði dóminn auk þess hvorki hafa fallist á að konan hafi verið ósakhæf á verknaðarstundu né talið að konan ætti sér ákveðnar málsbætur í ljósi alvarlegra andlegra veikinda sem hún glímdi við.
Dómurinn er sá þyngsti sem kveðinn hefur verið upp yfir konu hér á landi í rúma öld.
Umræða