• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 24. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

Brýnt að fjárfesta í heilbrigðu hafi og sjálfbærri nýtingu

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
23. júní 2025
in Fréttir, Innlent
A A
0

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku-, og loftslagsráðherra stýrði í dag fundi með fulltrúum íslenskra félagasamtaka um náttúruvernd, þar sem farið var yfir þau mál sem voru efst á baugi á Hafráðstefnu Sameinuðu þjóðanna (SÞ), sem haldin var fyrr í mánuðinum. Fundurinn var á vegum utanríkisráðuneytisins og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins og sátu hann jafnframt sérfræðingar úr sendinefnd Íslands á ráðstefnunni.

Farið var yfir þau mál sem voru efst á baugi á Hafráðstefnu Sameinuðu þjóðanna (SÞ) á fundi sem haldinn var á vegum utanríkisráðuneytisins og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins.

Á hafráðstefnu SÞ var kastljósinu  beint að haftengdum málefnum sem vilja gleymast í umræðu um sjálfbæra þróun og fjármögnun heimsmarkmiðanna. Hafið er undirstaða velferðar og efnahags stórs hluta mannkyns og nauðsynlegt að beina fjármagni til aðgerða sem stuðla að vernd og sjálfbærri nýtingu, en hætta skaðlegum niðurgreiðslum sem stuðla að ofnýtingu. Þetta sagði Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra í opnunarávarpi  pallborðs um fjármögnun Heimsmarkmiðs 14 á Hafráðstefnunni.

Jóhann Páll stýrði pallborðsumræðum ásamt Kaminu Johnson Smith, umhverfisráðherra Jamaica. Líflegar umræður spunnust og samhljómur um að Heimsmarkmið 14 væri vanrækt hvað fjármögnun varðar í samanburði við önnur Heimsmarkmið SÞ, sem eru 17 alþjóðlega samþykkt markmið ríkja heims um áherslur í þróunar- og velferðarmálum til 2030. Brýnt væri að bæta úr þessu, þar sem hafið og auðlindir þess væri undirstaða efnahags og velferðar milljarða manna.

Auk formannshlutverks í málstofunni flutti Jóhann Páll aðalávarp Íslands á Hafráðstefnunni, ávarp á heimsþingi eyríkja og átti tvíhliða fundi með ýmsum ráðamönnum, þ.á m. Rominu Pourmokhtari, umhverfis- og loftslagsráðherra Svíþjóðar, Astrid Schomaker, framkvæmdastjóra Samnings SÞ um líffræðilega fjölbreytni (CBD) og Peter Thomson, sérlegum erindreka framkvæmdastjóra SÞ um málefni hafsins.  Fulltrúar utanríkisráðuneytisins tóku auk þess þátt í pallborðsumræðum,  hliðarviðburðum og stóðu fyrir viðburði um mikilvægi fæðu úr höfum og vötnum fyrir fæðuöryggi og lífsviðurværi fólks um allan heim.

Hafið lykilþáttur í fæðuöryggi og baráttu gegn loftslagsvá

Á pallborðinu um fjármögnun Heimsmarkmiðs 14, sagði ráðherra að hafið hefði verið vanrækt í umræðu um loftslagsmál, sem gegnir lykilhlutverki bæði varðandi aðlögun og aðgerðir til að draga úr losun og auka bindingu kolefnis úr andrúmslofti. Vernd lífríkis í hafi, s.s. með vernd hafsvæða, væri líka fjárfesting í heilbrigði hafsins og samfélaga sem treystu á auðlindir þess.

Jóhann Páll lagði áherslu á mikilvægi góðrar fiskveiðistjórnunar með sjálfbæra nýtingu auðlinda hafsins, með vísindalega þekkingu og langtímahugsun að grunni. „Góð stjórnun á fiskveiðum leiðir til stöðugs lífsviðurværis, aukins fæðuöryggis og betri efnahags – einkum í strand- og eyjasamfélögum,“ sagði ráðherra í máli sínu. Gæði fjárfestinga skipti máli ekki síður en magn. Brýnt væri að stöðva niðurgreiðslur til fiskveiða sem stuðluðu að ofveiði og skaða, sem sem leiðir til margþætts ávinnings fyrir fæðuöryggi og í baráttunni gegn fátækt og gegn loftslagsvá, sagði ráðherra.

Nauðsynlegt að hlusta á sjónarmið eyríkja

Ráðherra fór á þingi um málefni eyríkja (World Island Forum) yfir stöðu og sögu Íslands hvað málefni hafsins varðar.

Brýnt væri að Íslendingar líkt og önnur ríki horfi víðar en á sjálfbærar fiskveiðar þar sem mengun, loftslagsvá og hnignun líffræðilegrar fjölbreytni væri ógn við hafið og vistkerfi þess.  Móta þyrfti heildstæða sýn og stefnu til að sporna gegn þeirri ógn og verja heilbrigði hafsins. Íslensk stjórnvöld hyggðust leggja aukna áherslu á vernd lífríkis hafsins og aðgerðir í þeim efnum.

Ákall um samkomulag gegn plastmengun strax

Ísland var meðal nærri 100 ríkja sem tóku þátt í ákalli um aðgerðir gegn plastmengun á ráðstefnunni í Nice. Þar eru ríki heims hvött til að ganga frá metnaðarfullu alþjóðlegu samkomulagi um plast og plastmengun, þ.á m. í hafinu og taki á öllum lífsferli plast. Næsti samningafundur verður í ágúst nk. í Genf.

Ráðherra tók þetta mál upp í ræðum og innleggjum sínum á Hafráðstefnunni og benti á að ýmsir alþjóðasamningar hefðu reynst vel í baráttunni gegn ýmiss konar mengun, s.s. af völdum kvikasilfurs og þrávirkra lífrænna efna. Drög að samkomulagi lægju nú þegar fyrir og brýnt að binda lokahnútinn á þessu ári – það sem ríki heims segðu í Nice væri hægt að gera í Genf, hvað plastmengun varðaði.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Auglýsingaherferð SFS (LÍÚ) hefur engu skilað – Hundruðir milljóna í vaskinn

    Auglýsingaherferð SFS (LÍÚ) hefur engu skilað – Hundruðir milljóna í vaskinn

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Spillingin þrífst hjá Sjöllunum – Hagsmunir kvótaerfingja þingmanna varðir á Alþingi

    36 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Leigja tonnið á 500.000 kr. og greiða 0 kr. í auðlindagjald og 0 kr. í vsk

    141 deilingar
    Share 56 Tweet 35
  • Sigurður Fannar Þórsson dæmdur í 16 ára fangelsi fyrir manndráp á 10. ára dóttur sinni.

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Vélhjólaslys

    25 deilingar
    Share 10 Tweet 6
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?