Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra og Berglind Kristinsdóttir framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum (SSS) undirrituðu í vikunni samning um fjárstuðning við smærri atvinnurekendur í Grindavík. Heildarframlag ríkisins verður 50 milljónir kr.
Stuðningurinn er einkum ætlaður einyrkjum og smærri fyrirtækjum sem voru með starfsemi í Grindavík 10. nóvember 2023, eru í rekstri og hafa a.m.k. einn starfsmann á launaskrá. Fjármunum skal varið til verkefna sem snúa m.a. að markaðssetningu, vöruþróun og nýsköpun. Styrkjum er hvorki ætlað að kaupa upp eignir né að greiða niður skuldir.
Opnað fyrir umsóknir í byrjun júlí
Opnað verður fyrir umsóknir um fjárstuðning í byrjun júlí en umsóknarfrestur er til og með 18. ágúst. Stefnt er að úthlutun í byrjun september. Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum mun fara með verkefnastjórn og umsýslu. Fjármunum verður úthlutað í einni úthlutun í gegnum uppbyggingarsjóð sóknaráætlunar Suðurnesja og gilda almennar reglur sjóðsins um mat á umsóknum.
Samningurinn er viðauki við sóknaráætlun Suðurnesja 2025-2029 og er gerður með vísan í samþykkt ríkisstjórnarinnar frá 18. mars 2025 um stuðning við lítil og meðalstór fyrirtæki í Grindavík.