• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Fimmtudagur, 10. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Bráða­birgða­brú hífð á Ölfusá með stærsta krana lands­ins

Bráða­birgða­brú hífð á Ölfusá með stærsta krana lands­ins

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
9. júlí 2025
in Fréttir, Innlent
A A
0

Bráðabirgðabrú yfir Ölfusá var hífð á stöpla sína föstudaginn 4. júlí. Brúin tengir varnargarð austan megin árinnar við steyptan sökkul á eyjunni. Hún mun þjóna vinnuumferð út í eyjuna en þar þarf að reisa undirstöður fyrir 60 metra háan turn Ölfusárbrúar.

Dágóður tími fór í undirbúning en sjálf hífingin gekk snurðulaust og hratt fyrir sig. Byrjað var að hífa um klukkan 17  og var brúin komin á sinn stað um tuttugu mínútum síðar. DS lausnir sáu um að hífa brúna en til þess var notaður 400 tonnmetra krani sem er sá stærsti á landinu.

Brúin er frá fyrirtækinu Acrow á Bretlandi og er sömu gerðar og nýja færanlega göngu- og hjólabrúin yfir Sæbraut. Hún kom ósamsett til landsins og það tók fimm menn tvo daga að setja hana saman sem var tveimur dögum fljótar en framleiðandinn gerði ráð fyrir. Brúin var 44 tonn þegar hún var hífð af krananum en þegar búið verður að leggja brúargólf verður hún 68 tonn.

Næstu daga tekur við frágangur við brúna, steypa þarf bakveggi, festa brúargólf, ganga frá festingum og fylla jarðveg að henni. Áætlað er að það taki um vikutíma en að því loknu verður opnað fyrir vinnuumferð yfir í eyjuna til að koma efni og búnaði út í hana. Í eyjunni verða byggðar undirstöður fyrir 60 metra háan turn Ölfusárbrúarinnar.

Framkvæmdir í fullum gangi

Framkvæmdir við verkið Hringvegur (1) við Ölfusá ganga annars vel. Samningur við verktakan ÞG Verk var undirritaður í nóvember og við sama tækifæri var tekin fyrsta skóflustungan að framkvæmdunum. Síðan þá hafa verið gerðar jarðvegsrannsóknir ýmsar og unnið við jarðvegsskipti. Í janúar var tækjabúnaður fluttur á pramma yfir í Efri-Laugardælaeyju bæði til að gera fleiri rannsóknir en einnig til að undirbúa gerð steypts brúarstöpuls fyrir bráðabirgðabrúna.

Í maí og júní var unnið að því að koma upp varnargarði og vinnuvegi í Ölfusá, frá eystri bakka árinnar í átt að Efri-Laugardælaeyju. Verktakinn hefur einnig að mestu lokið við að skapa sér vinnuaðstöðu austan við ánna.

Í dag starfa um 25 manns við verkið á vegum verktaka auk eftirlits- og mælingarmanna. Einnig starfa við framkvæmdina hönnuðir, fageftirlitsmenn, ráðgjafar og umsjónarmenn framkvæmdarinnar á vegum Vegagerðarinnar. Unnið er að fullnaðarhönnun vega, vegamannvirkja og brúar. Um sextíu til sjötíu manns koma að hönnuninni og eru þeir frá að minnsta kosti fjórum löndum, Finnlandi, Danmörku, Noregi og Íslandi.

Unnið er við jarðvegsskipti austan árinnar frá bakka Ölfusár áleiðis að fyrirhuguðum mislægum vegamótum Hringvegar (1) austan Selfoss. Búið er að taka burt allt efni og fylling komin vel af stað. Þá er vinna hafin við undirstöður vegbrúarinnar við mislægu gatnamótin.

Vestan megin við ána er búið að hreinsa laus jarðefni af klöppinni þar sem áætlað er að koma fyrir landstöpli Ölfusárbrúarinnar og er ætlunin að hefja uppsteypu stöpulsins í mánuðinum. Unnið hefur verið að því að sprengja klapparhaft sem var í vegstæðinu skammt vestan við ána og er þeim sprengingum lokið. Enn vestar er unnið við fergingar vegstæðisins yfir Hrísmýri á um 700 metra kafla í átt að Biskupstungnabraut. Nauðsynlegt þykir að fergja svæðið þar sem undirlagið er mjúkt og mikilvægt að efnið fái tíma til að setjast og þéttast.

 

Umræða
Share1Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Banaslys á Miklubraut í Reykjavík

    32 deilingar
    Share 13 Tweet 8
  • Undirbúa mótmæli gegn stjórnarandstöðunni

    14 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Michael Moore fjallar um glæpina sem gerðu Ísland gjaldþrota

    455 deilingar
    Share 182 Tweet 114
  • Þúsundum tonna af fiskveiðiauðlind þjóðarinnar sóað

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Málþófið kostar 345 milljónir króna – ,,Í dag er sorgardagur fyrir lýðræðið“

    5 deilingar
    Share 2 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?