Er hægt að líta nú svo á að SFS OG STÓRÚTGERÐ séu að fremja valdarán?
Hversvegna er fólk að bjóða sig fram? Ætlar það að vinna að málum fyrir þjóðina? Eða bauð það sig fram til að tefja þingstörf og öll þau góðu áform sem lýðræðislega kosin ríkisstjórn gaf loforð um að vilja gera fyrir kjósendur; þjóðina sína. Tími sérhagsmuna og vinna þingmanna fyrir oligarka á Íslandi er liðinn!

Þarf ekki stjórnarandstaða að fara að vakna af þeim þyrnirósasvefni og viðurkenna að þeirra krafta var ekki óskað eftir i síðustu kosningar? Heldur var samþykkt að komið væri að leiðarlokum fráfarandi ríkisstjórnar, ríkisstjórnar óligarka og sérhagsmuna.
Þingmenn stjórnarandstöðunnar eru málaliðar SFS
Þau hafa opinberað sig og eru málaliðar SFS og hafa kostað þingið um hálfan milljarð með málþófi, enda telja þau það heilaga skyldu sína að þóknast SFS og kvótaerfingjum að nýtingarétti til eins árs á auðlind þjóðarinnar en neita að greiða eðlilegt gjald fyrir veiðileyfið til eigandans. Lekið upplýsingum til yfirboðara sinna, SFS mafíunnar.
En þeir eru víst orðnir svo fáir að þeir geta engan veginn tryggt stjórnarandstöðu forystu á Alþingi lengur.
Enda er kominn ný kynslóð sem vill breytingar og samþykkir ekki blint að gera bara eins og mamma, amma og svo framvegis, hafa gert mann fram af manni.
Er ekki bara tímabært að vakna af þyrnirósasvefninum og átta sig á að málþóf mun bara eyða ykkur út til framtíðar.
Þið hafið tapað þessari orustu og þurfið einfaldlega að viðurkenna það og fara að vinna af heilindum fyrir land og þjóð af þeim góðu málefnum sem þjóðin kaus.
Er hægt að líta nú svo á að SFS OG STÓRÚTGERÐ séu að fremja valdarán?
Er tímabært að afvopna handhafa á afnotarétt á aflaheimildum landsmanna til eins árs í senn og byrja upp á nýtt og vanda sig við að færa afnotarétt jafnt yfir allt landið og tryggja þannig dreifða og örugga vinnu um land allt.
Alþingi er vanvirt af stjórnarandstöðu og sýnir okkur landsmönnum að þessir flokkar er aðgerðastjórn fyrir SFS OG STÓRÚTGERÐ sem hyggst eignast allt í okkar samfélagi og verða ráðandi í einu og öllu.
Hvert stefnir okkar auðuga land og hvernig viljum við hafa það?