• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 9. ágúst 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Réttur neytenda til úrræða vegna greiðsluerfiðleika

Réttur neytenda til úrræða vegna greiðsluerfiðleika

Greiðslumat á hvorki að hindra úrræði til að lækka greiðslubyrði né endurfjármögnun

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
7. ágúst 2025
in Fréttir, Innlent, Neytendur
A A
0

Greiðslumat á hvorki að hindra úrræði til að lækka greiðslubyrði né endurfjármögnun

Komið hefur fram í fréttum að dæmi séu um að fólk í greiðsluerfiðleikum geti ekki lækkað greiðslubyrði húsnæðislána ef það kemst ekki í gegnum greiðslumat. Því miður virðist vera tilhneiging til að kenna gildandi reglum um greiðslumat um þetta sem að sumra mati geta verið nokkuð strangar.

Fyrir utan þá augljósu þversögn sem felst í hærri greiðslubyrði en lánveitandi sjálfur telur neytanda ráða við og að honum sé svo neitað um úrræði til að draga úr henni er það líka raunin að í slíku tilviki er viðkomandi lánveitandi líklega ekki að fara réttilega eftir gildandi lögum og reglum.

Vissulega er það meginreglan samkvæmt 20. gr. laga um fasteignalán til neytenda nr. 118/2016 að lánveitandi skuli meta lánshæfi og greiðslugetu neytanda áður en samningur um fasteignalán er gerður og samkvæmt 22. gr. að hann skuli aðeins veita fasteignalán ef hann telur líklegt að neytandi geti staðið í skilum með lánið að teknu tilliti til niðurstöðu lánshæfis- og greiðslumats.

Aftur á móti eru gerðar ýmsar undanþágur frá þessu í 23. gr. sömu laga en þær sem hér skipta mestu máli eru að ekki er skylt að framkvæma lánshæfis- og greiðslumat vegna:

  • Endurfjármögnunar eða framlengingar fasteignalána sem hækkar ekki greiðslubyrði.
  • Skilmálabreytinga fasteignalána sem leiða ekki til meira en 20% hækkunar á greiðslubyrði.
  • Skilmálabreytinga fasteignalána, þ.e. frestunar greiðslna eða breyttrar greiðsluaðferðar, sökum þess að neytandi á í greiðsluerfiðleikum.

Jafnframt er tekið skýrt fram í reglum Seðlabanka Íslands um hámark greiðslubyrðar fasteignalána í hlutfalli við tekjur neytenda og veðsetningarhlutfalls fasteignalána til neytenda að þær gilda ekki vegna endurfjármögnunar sökum greiðsluerfiðleika neytenda.

Ef lánveitandi hafnar þrátt fyrir þetta umsókn neytanda um endurfjármögnun eða skilmálabreytingu vegna greiðsluerfiðleika virðist starfsfólk hans ekki hafa lesið lögin um fasteignalán til neytenda nógu vel því samkvæmt 38. gr. þeirra skal neytanda veitt færi á að óska eftir úrræðum, svo sem endurfjármögnun eða skilmálabreytingu láns, sem gætu leyst greiðsluerfiðleika hans, áður en lánveitandi krefst nauðungarsölu fasteignarinnar, sem annars yrði líklega afleiðing vanskila.

Þetta leggur þá skyldu á lánveitanda að vinna með neytenda til að forðast greiðsluerfiðleika eða leysa úr þeim áður en allt fer í óefni en ekki gegn honum og er með öllu óheimilt að hafna beiðni neytanda um slík úrræði. Þá er greiðslumat með tilheyrandi aukakostnaði í raun algjör óþarfi og á alls ekki að vera nein hindrun. Lánveitandi sem neitar að bjóða neytanda í greiðsluerfiðleikum úrræði sem gætu leyst þann vanda er því einfaldlega brotlegur við lög.

Neytendur sem standa frammi fyrir brotum á þessum lögbundnum réttindum sínum geta leitað aðstoðar Hagsmunasamtaka heimilanna við að leita réttar síns og ættu jafnframt að tilkynna þau Neytendastofu sem hefur opinbert eftirlit með framkvæmd laga um fasteignalán til neytenda.

Loks má þess geta að dugi engin úrræði sem lánveitandi getur boðið upp á til að leysa vanda neytanda er hægt að leita greiðsluaðlögunar eða nauðasamninga ef allt um þrýtur. Þegar umsókn um slíkt úrræði er tekin til meðferðar er óheimilt að krefjast nauðungarsölu á heimili umsækjanda á meðan samninga er leitað. Ekki gefst þó svigrúm til að rekja þetta nánar hér í smáatriðum enda er það efni í annan pistil.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Paul McCartney og Elton John sungu fyrir Phil Collins

    Paul McCartney og Elton John sungu fyrir Phil Collins

    146 deilingar
    Share 58 Tweet 37
  • Ég tapaði 350 fermetra einbýlishúsi – Faðir minn var með alzheimer og giftist ungri konu

    447 deilingar
    Share 179 Tweet 112
  • Banaslys í Vestari-Jökulsá

    18 deilingar
    Share 7 Tweet 5
  • Ísbjörn á ísjaka út af Straumnesi – myndband var tekið

    175 deilingar
    Share 70 Tweet 44
  • Bönkum óheimilt að neita fólki í greiðsluerfiðleikum

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?