Hugleiðingar veðurfræðings
Í dag verður hægviðri og yfirleitt léttskýjað á landinu en skýjað og lítilsháttar rigning eða súld ausast fram undir hádegi og líkur á stöku skúr vestanlands. Er líður á daginn nálgast lægð landið úr suðvestri með vaxandi suðaustanátt, allhvass vindur eða hvassviðri á Suður- og Vesturlandi í kvöld og í nótt fer að rigna.
Á morgun má búast við allhvassri suðaustanátt og rigningu en lengst af þurrt veður norðaustanlands. Síðdegis á morgun dregur úr vindi og úrkomu, sunnan 5-13 m/s og skúrir annað kvöld.
Hiti 7 til 13 stig að deginum. Spá gerð: 28.09.2025 06:33. Gildir til: 29.09.2025 00:00.
Veðurhorfur á landinu
Hægviðri og yfirleitt þurrt og bjart, en stöku skúrir sunnan- og vestanlands fram yfir hádegi. Vaxandi suðaustanátt suðvestantil síðdegis, 10-15 m/s og skýjað þar í kvöld, en allt að 20 m/s við suðurströndina í nótt.
Suðaustan 8-20, hvassast suðvestanlands og rigning í fyrramálið, en þurrt norðaustanlands fram yfir hádegi. Suðlæg átt, 5-13 og skúrir síðdegis á morgun, en áfram rigning austast.
Hiti 7 til 13 stig að deginum. Spá gerð: 28.09.2025 10:40. Gildir til: 30.09.2025 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á þriðjudag:
Sunnan 5-13 m/s, hvassast við suðurströndina. Rigning eða súld, en skýjað að mestu og þurrt á Norður- og Austurlandi fram á kvöld. Hiti víða 8 til 14 stig.
Á miðvikudag:
Suðlæg eða breytileg átt, 5-10 m/s. Rigning, sums staðar talsverð á suðaustanverðu landinu, en styttir að mestu upp norðaustanlands seinnipartinn. Hiti 7 til 13 stig.
Á fimmtudag:
Suðvestlæg eða breytileg átt með rigningu eða skúrum sunnan- og vestanlands en skýjað með köflum á Austurlandi. Hiti 5 til 11 stig.
Á föstudag:
Hæg breytileg átt og bjartviðri, en líkur á stöku skúrum sunnan- og vestanlands. Hiti 5 til 11 stig.
Á laugardag:
Útilt fyrir norðvest- eða vestlægar áttir með slydduéljum norðanlands en skúrum sunnanlands. Hiti 1 til 10 stig, hlýjast sunnanlands.
Spá gerð: 28.09.2025 08:48. Gildir til: 05.10.2025 12:00.

