Þjóðin horfir í forundran á geðsveiflur hugstola ráðstýru setja sig í stellingar grátkonu og stíga svo gleðidansa að kvöldi á börum.
MEÐ KROSS UM HÁLS …

Þorgerður jafnan með kross fylgir ekki Jesú Kristi. Við vitum hvað Páll postuli sagði um baráttu góðs og ills. Þorgerður dreifir skattfé til útlanda eins og sælgæti, 150 milljónir króna til hinsegin aðgerðista í New York um daginn, 60 milljónir í rampa í Úkraínu á dögunum. Ljósið samtök krabbameinssjúkra á sama tíma skert um 200 milljónir.
SVÍVIRÐILEGASTI SVIKAGJÖRNINGUR ÍSLANDSSÖGUNNAR
Hjónin voru leyst undan ábyrgð af 1,7 milljarða skuldabréfi. Hinn almenni sjálfstæðismaður vísaði Toggu á dyr svo hún snéri sér til Brussel og stofnaði Viðreisn.
Hjónin voru “hreinsuð“ í Hæstarétti árið 2014 af 534 milljóna kröfu þrotabús Kaupþings. Þá var 72,4 milljóna veði aflétt svo þau nytu arðgreiðslna til fulls. Þetta er ekki hægt að skálda. Þorgerður forherðist nú þegar bókun 35 er komin upp á dekk og lögblind Inga sælent “…sér ljósið eftir samtöl við sérfræðinga.“
Til hamingju Viðreisn með almannahagsmuni ÞKG! Tekur lögregla upp landráðakæru Arnars Þórs Jónssonar fyrir hönd Þjóðfrelsis. Stórt er spurt …
Michael Moore fjallar um glæpina sem gerðu Ísland gjaldþrota

