Hér eru nokkur mál úr dagbók lögreglu á tímabilinu 29. september kl. 17:00 til 30. september kl. 05:00. Alls eru 53 mál bókuð í kerfum lögreglu á tímabilinu. Listinn er ekki tæmandi.
Lögreglustöð 1 – Austurbær- Miðbær-Vesturbær-Seltjarnarnes:
Ökumaður handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum vímuefna í hverfi 101, en hann var einnig próflaus. Látinn laus að lokinni blóðsýnatöku.
Ökumaður handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum vímuefna í hverfi 103, en hann var einnig sviptur ökuréttindum. Sá var látinn laus að lokinni blóðsýnatöku. Stuttu síðar var annar aðili handtekinn fyrir sömu sakir á sömu bifreið.
Óskað aðstoðar vegna hnupls úr verslun í hverfi 104. Afgreitt með vettvangsskýrslu.
Aðili handtekinn grunaður um brot á lögreglusamþykkt fyrir Reykjavíkurborg og fyrir að segja ekki til nafns í hverfi 101. Sá var vistaður í fangageymslu, enda í annarlegu ástandi.
Óskað aðstoðar vegna ógnandi manna í hverfi 101.
Ökumaður handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum vímuefna í hverfi 105, en hann var einnig próflaus. Látinn laus að lokinni blóðsýnatöku.
Óskað aðstoðar vegna umferðarslyss í hverfi 108, en þar hafði bifreið runnið til á veginum og hafnað á ljósastaur utan vegar. Ekki varð slys á fólki.
Óskað aðstoðvar vegna hópslagsmála í hverfi 104.
Lögreglustöð 2 – Hafnarfjörður- Garðabær- Álftanes:
Óskað aðstoðar vegna umferðarslyss í hverfi 220, en þar hafði bifreið verið ekið á aðskotahlut þannig að tveir hjólbarðar undir henni sprungu.
Lögreglustöð 3 – Kópavogur- Breiðholt:
Tilkynnt um þjófnað úr bifreið í hverfi 109.
Óskað aðstoðar vegna óvelkomins aðila með leiðindi framan við veitingahús í hverfi 200.
Óskað aðstoðar vegna árásar hunds á annan hund í hverfi 109.
Óskað aðstoðar vegna umferðarslyss í hverfi 109, en þar skullu tvær bifreiðar saman. Ekki var slys á fólki.
Óskað aðstoðar vegna bifreiðar á akbraut í hverfi 109 sem olli hættu. Dregin í burtu með dráttarbifreið.
Lögreglustöð 4 – Grafarvogur- Mosfellsbær- Árbær:
Tilkynnt um þjófnað á fartölvu í hverfi 110.
Ökumaður handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum áfengis og annarra vímuefna í hverfi 110. Látinn laus að lokinni blóðsýnatöku.

