• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 7. október 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Strandveiðibátar fái tíu daga að auki á næsta fiskveiðiári

Bátar í Sandgerði Mynd: Fréttatíminn

Auka 2500 tonn fari til vistvænna strandveiða

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
4. október 2025
in Fréttir, Innlent, Viðskipti
A A
0

Krafa vistvænna strandveiðimanna sem fá úthlutaða sóknardaga, er að veiðar hefjist 15.mars ár hvert og þeim ljúki fyrsta oktober á hverju ári

Til þess að það geti orðið að veruleika, þarf að stokka upp í 5,3% kerfinu svokallaða og breyta þar úthlutun. Í samtali við vistvæna strandveiðisjómenn hefur komið fram að þeir hafi heyrt að ráðherra ætli að afnema skel og rækjubætur sem hafa verið umdeildar sem og pólitískan byggðakvóta sem er enn umdeildari og hefur reglulega komist á forsíður fjölmiðla. Útgerðir sem hafa fengið þennan kvóta árlega hafa ekki enn fengið úthlutun og er von strandveiðimanna sú að hlutur þeirra verði nú leiðréttur.

Vistvænar strandveiðar hjá smábátum hafa átt undir högg að sækja undanfarin ár og hafa úthlutanir sóknardaga verið í lausu lofti undanfarin ár og áratugi.

Útgerðum strandveiðbáta hefur verið lofað ár eftir ár, ákveðnir örfáir veiðidagar að sumri en oftast verið stoppaðir löngu áður en þeir dagar nást. Nú síðast var þeim lofað 48 dagar þ.e. 12-14 klst. hvern dag en það var svikið, og olli það stórtjóni hringinn í kringum landið ásamt mikilli byggðaröskun og fjárhagstjóni einyrkja sem og fyrirtækja í greininni.

Vistvænir strandveiðibátar hafa fengið allt að 96 sóknardaga á ári, hér á árum áður og niður í 23 daga. Þá hefur þeim síðustu ár verið lofað að fá að veiða út sumarið en það jafnan ítrekað svikið af ráðherrum.

Skel- og rækjubætur eru veiðiheimildir sem úthlutað er til þeirra sem áttu kvóta í skel og rækju áður en hrun varð í þeim veiðum. Árlega hefur verið úthlutað frá 2000 til 2500 tonnum þar sem örfá útgerðarfélög fá allt að þúsund tonn af þessum bótum og hafa fengið undanfarna áratugi.

Yfirleitt fá útgerðarmenn sem veiddu hörpudisk og innfjarðarrækju á árum áður að vita það síðsumars hversu miklar veiðiheimildir þeir fá af öðrum tegundum. Í ár hefur engin slík reglugerð verið gefin út þrátt fyrir að mánuður sé liðinn af fiskveiðiárinu. Það gæti bent til breytinga á fiskveiðikerfinu.

Skel- og rækjubætur  falla undir byggðakerfi fiskveiðistjórnunarkerfisins, þar sem 5,3% af árlegum veiðiheimildum eru teknar frá úthlutunum til kvótaþega til að efla atvinnu og byggð í landinu eins og það er orðað í lögum og reglugerðum. Undir 5,3-pottinum eru hinar ýmsu ráðstafanir í fiskveiðikerfinu: strandveiðar, byggðakvóti almennur og sértækur, línuívilnun og svo skel- og rækjubætur.

Með því að úthluta þessum 2500 tonnum til strandveiðibáta myndi sú úthlutun sannarlega rétta við það óréttlæti sem strandveiðimenn hafa búið við undanfarna áratugi sem og byggðir alls landsins.

Vilt þú styrkja frjálsan og óháðan fjölmiðil sem þorir og er án ríkisstyrkja? Skráðu þig hér

Strandveiðar hefjist 15. mars til fyrsta október

Strandveiðibátar fái tíu daga að auki á næsta fiskveiðiári

Umræða
Share2Tweet2
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Tveir handteknir vegna andláts á Selfossi

    Hnífstunguárás – Hópur manna réðst á einn með höggum og spörkum

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Lagt verði bann við hækkun á húsaleigu

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • 55,651,000 kr. greitt af 50% láni á Íslandi en 15,838,435 kr. af 100% láni í Færeyjum

    80 deilingar
    Share 32 Tweet 20
  • Opið bréf til barna minna

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Verslanir sem ekki taka reiðufé sektaðar um 315 milljónir

    67 deilingar
    Share 27 Tweet 17
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?