Endalaust regluverk um það sem má ekki!
Eftir mörg símtöl og miklar bréfaskriftir er tóninn hjá félögum þess efnis að það sé allt gert til að gera strandveiðar erfiðar og illa rekstrarfærar.

Og svo er sagt af þeim sem vilja koma í veg fyrir það að þær séu sjálfbærar. Hvar liggur hundurinn grafinn?
Fáum við aldrei ríkisstjórn sem stendur með og efnir sín loforð um bættar strandveiðar? Nú er búið að svíkja okkur einu sinni. Næst erum við látnir sætta okkur við að málefni okkar sé á dagskrá korter í strandveiðar eða í febrúar.
þetta málefni er samt bundið í stjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórnar.
Ég er einn af þeim sem er að verða hundleiður á ríkisstjórnum sem geta ekki haft fyrirsjáanleika svo menn geti skipulagt sig við veiðar.
En mér virðist vera ásetningur stjórnvalda að gera allt til að tryggja sem minstu veiði í strandveiðum og gera umgjörð svo erfiða að enginn komist inn nema fuglinn fljúgandi.
Hversvegna? Þetta eru smábátar sem engu tjóni valda hvorki á lífríki né fiskistofnum. Skapa atvinnu í þorpum sem misst hafa allar aflaheimildir frá sér.
Og eins og kemur fram er nýliðun af fólki sem er að hætta á sjó og gefur þá yngra fólki séns á plássum sem losna. Hversvegna er slæmt að nýliðun sé að hluta til eldra fólk?
Mér sýnist þetta geta verið lýðheilsusamlegt fyrir sjómenn sem komnir eru af sjó á stærri skipum. Ég held að fólk sé alltof mikið með rörsýn á að fjölskyldur á strandveiðum séu að græða alltof mikið á svona kerfi.
En það er samt ekki staðreyndin, heldur er staðreynd sú að þetta kerfi í núverandi mynd er bókstaflega hættulegt og leiðinlegt.
Og eflaust ekkert sem laðar ungt fólk til sín í að byrja í atvinnugreininni. Ef ekkert breytist og svæðaskipting hverfur ekki.
Og þetta endalausa regluverk um það sem má ekki í strandveiðum. Rauðir dagar 12 dagar 4 mánuðir og ekki pissa bakvið hurð því dónar gætu óvart séð það,
þá má bara skipta þessum potti upp á milli báta, jafnt, ekki eftir reynslu og hætta þessu endalausa bulli um loforð sem standast aldrei. Og eyða út þessari endalausri óvissu sem ríkir hjá núverandi ríkisstjórn febrúar eru ávísun á önnur svik við sina umbjóðendur.
En ef samið er um kvóta má spara sér málþóf í Alþingi. – Og hana nú