• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 29. október 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Reikningar upp á 190 milljónir – ráðin í fullt starf

Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri

Reikningar upp á 190 milljónir – ráðin í fullt starf

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
28. október 2025
in Fréttir, Innlent
A A
0

Þórunn Óðinsdóttir, stofnandi Intra, hefur verið ráðin tímabundið í fullt starf hjá embætti ríkislögreglustjóra. Þetta segir í tilkynningu embættisins í kjölfar fréttar sem Ríkisútvarpið flutti um málið.

Þar sagði að frá árinu 2018 hafi Þórunn Óðinsdóttir unnið verkefni upp á samtals 190 milljónir fyrir tvö lögregluembætti; lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu og ríkislögreglustjóra, að frumkvæði Sigríðar Bjarkar Guðjónsdóttur.

Í tilkynningu embættis ríkislögreglustjóra segir að ekki hafi verið farið í útboð eða verðfyrirspurnir fyrir verkefnin þar sem ekki lá fyrir að þau yrðu til lengri tíma. Þar af leiðandi hafi ekki verið til staðar rammasamningur fyrir slíka vinnu hjá ríkinu á þeim tíma.

„Eðlilegast hefði þó verið að fara í verðfyrirspurnir og/eða í örútboð strax í upphafi. Ríkislögreglustjóri harmar að svo hafi ekki verið gert,“ segir í tilkynningunni.

Ástæða þess að fyrirtækið Intra ráðgjöf slf., í eigu Þórunnar Óðinsdóttur, var fengið til að stýra ákveðnum umbótaverkefnum hafi meðal annars verið mikið vinnuálag hjá embættinu vegna stórra verkefna eins og leiðtogafundar Evrópuráðsins og mikilla anna í almannavarnaverkefnum. Þá segir jafnframt í frétt rúv.is:

Innkaup hjá Jysk

„Ljóst er að það var ekki góð ráðstöfun að félagið hafi sinnt búðarferðum og annarri vinnu við að innrétta tímabundið húsnæði embættisins. Ákvarðanir um innkaup hjá Jysk (áður Rúmfatalagerinn) voru hins vegar teknar af starfsmönnum embættisins og byggðu á hagkvæmum verðum,“ segir í tilkynningunni. Eiginmaður Þórunnar, Þórarinn Ingi Ólafsson, er forstjóri móðurfélags og stjórnarformaður JYSK á Íslandi.

Intra ráðgjöf slf. hafi upphaflega verið fengin til að vinna með embætti ríkislögreglustjóra tímabundið árið 2020 vegna breytinga á stjórnskipulagi embættisins. Í því hafi falist breytingar á skipuriti, skipulagi, stefnu og vinnulagi embættisins í heild meðal annars með lean-námskeiðum og innleiðingu á verkefnastjórnun hjá öllum einingum ríkislögreglustjóra.

Þórunn Óðinsdóttir er einn helsti sérfræðingur landsins í lean management eða straumlínustjórnun. Félag hennar hélt áfram að vinna með embættinu næstu ár.

Öll verkefni sýnileg

Þegar ljóst var að embættið þyrfti að flytja starfsemi sína sökum myglu í húsnæði var félagið fengið til að verkefnastýra flutningunum „í ljósi þekkingar þess á starfseminni og skamms fyrirvara flutninganna í bráðabirgðahúsnæði við Vatnagarða og á Rauðarárstíg.“ Þar komu búðarferðirnar og innréttingin inn.

Embætti ríkislögreglustjóra áréttar að öll verkefni sem Intra ráðgjöf slf. hefur unnið fyrir embættið hafi verið sýnileg; „unnin samkvæmt tímaskýrslum sem skilað er mánaðarlega auk þess sem farið hefur verið yfir verkefnin í framkvæmdastjórn og allir reikningar verið opnir á netinu.“

Umræða
Share2Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Áríðandi fréttatilkynning frá lögreglu

    Áríðandi fréttatilkynning frá lögreglu

    64 deilingar
    Share 26 Tweet 16
  • Eldur í blokk í Ljósheimum

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Fólk haldi sig heima – Fréttatilkynning frá aðgerðastjórn höfuðborgarsvæðisins

    5 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Reikningar upp á 190 milljónir – ráðin í fullt starf

    5 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Bílastæðabraskið – brýnt að fljótt verði gripið til aðgerða til varnar neytendum

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?