• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 25. janúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Réttur neytenda til úrræða vegna greiðsluerfiðleika

vextir

Ein­faldar lausnir á vaxtamálavanda bankanna

Guðmundur Ásgeirsson formaður Hagsmunasamtaka heimilanna.skrifar

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
6. nóvember 2025
in Aðsent & greinar, Fréttir, Innlent, Viðskipti
A A
0

Vesalings bankarnir vita nú ekki sitt rjúkandi ráð og hafa auk að minnsta kosti þriggja lífeyrissjóða stöðvað tímabundið veitingu verðtryggðra lána og sumir líka óverðtryggðra lána með skilmálum um breytilega vexti í kjölfar dóms Hæstaréttar Íslands um ólögmæti þeirra.

Sem betur fer eru þó til afar einfaldar og hagnýtar lausnir á þessum meinta vanda.

Fyrir verðtryggðu lánin:

  • Stöðvið allar lánveitingar verðtryggðra lána til neytenda, líka með föstum vöxtum.
  • Gerið tímabundnu stöðvunina varanlega! Það þarfnast engra frekari aðgerða.
  • Bjóðið neytendum með eldri verðtryggð lán að breyta þeim í óverðtryggð lán og fylgið í þetta sinn lögum með því að setja engin skilyrði um greiðslumat við skuldbreytinguna.

Fyrir óverðtryggðu lánin:

  • Fylgið lögum og leiðréttið vexti útistandandi óverðtryggðra lána neytenda í þá sem var upphaflega samið um enda eru skilmálarnir um breytingar á þeim ólöglegir.
  • Endurgreiðið með dráttarvöxtum alla þegar oftekna vexti umfram samningsvexti!
  • Bjóðið neytendum óverðtryggð lán með föstum vöxtum allan lánstímann og hafið þá engar áhyggjur af því að verða gripnir aftur glóðvolgir því það er fullkomlega löglegt.
  • Ef þið viljið endilega bjóða neytendum óverðtryggð lán með breytilegum vöxtum, farið þá framvegis eftir ykkar eigin greiðslumati og hækkið ekki vexti á neinu slíku láni umfram það sem þið höfðuð sjálfir reiknað út að rúmaðist innan greiðslugetu lántakandans því þá amast varla neinn yfir vaxtabreytingum innan þeirra marka.

Sérlausn vegna fyrstu kaupa:

  • Greiðslujöfnun: Til að auðvelda fyrstu kaupendum að standast greiðslumat getur lánið verið afborgunarlaust þannig að eingöngu eru greiddir vextir af því fyrstu 3-5 árin. Að þeim tíma liðnum er greiðslumatið endurnýjað og greiðslubyrðin aðlöguð að því svo að afborganir af höfuðstól hefjist. Þetta er svo endurtekið með jafn löngu millibili á lánstímanum þar til greiðslubyrðin samsvarar því sem nægir til að greiða lánið að endingu niður að fullu.
  • Fyrstu kaupendur: Neytendur sem hafa ekki átt eigin íbúð undangengin 5 ár líkt og á við um opinber úrræði vegna fyrstu kaupa. Óverulegur eignarhlutur sem hefur ekki verið keyptur heldur fenginn í arf eða af svipuðum ástæðum telst ekki vera eigin íbúð.

Lánveitendum er hjartanlega velkomið að leita ráða hjá Hagsmunasamtökum heimilanna um nánari útfærslur á þessum sem og öðrum lausnum í þágu neytenda á fjármálamarkaði.

Heimilin eiga ekki að vera fóður fyrir bankana!

Höfundur er formaður Hagsmunasamtaka heimilanna.

Umræða
Share1Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • ,,Sólveig Anna flengdi Hallgrím Helgason á beran bossann“

    ,,Sólveig Anna flengdi Hallgrím Helgason á beran bossann“

    79 deilingar
    Share 32 Tweet 20
  • ,,Núverandi borgarstjóri tók þátt í skipulögðum árásum á feður“

    32 deilingar
    Share 13 Tweet 8
  • Heiða Björg í leynihópi – „rústum þessum gaurum“

    77 deilingar
    Share 31 Tweet 19
  • Fýlustjórnun, þagnarbindindi og hunsun eru gereyðingarvop

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Nýtt flugfélag í Keflavík

    129 deilingar
    Share 52 Tweet 32
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?