Alþingi samþykkti nú rétt í þessu frumvarp Ingu Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, um breytingu á húsaleigulögum. Lögunum er ætlað að auka réttarvernd og húsnæðisöryggi leigjenda með því að stuðla að aukinni langtímaleigu og fyrirsjáanleika um breytingar á leigufjárhæð. Þeim er einnig ætlað að bæta upplýsingar um leigumarkaðinn með almennri skráningu leigusamninga og auknu gagnsæi um upplýsingar í leigusamningum.
- Samkvæmt lögunum verður óheimilt að semja um að leigufjárhæð í tímabundnum samningum taki breytingum á fyrstu 12 mánuðum samningsins.
- Skylda til að skrá leigusamninga í leiguskrá Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar verður útvíkkuð þannig að hún nái til allra sem leigja út húsnæði til íbúðar. Áður takmarkaðist skráningarskyldan við leigusala sem leigja út fleiri en tvær íbúðir.
- Leigusamningar í leiguskrá verða framvegis ekki undanþegnir upplýsingarétti almennings.
- Skattívilnun vegna leigutekna leigusala verður háð skráningu leigusamnings í leiguskrá.
„Lögin auka réttarvernd og húsnæðisöryggi leigjenda sem og upplýsingar um leigumarkaðinn. Þau marka þannig tímamót og sýna hvernig við í ríkisstjórninni ætlum og erum að taka húsnæðismálin föstum tökum,“ segir Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra.
Heildstæðar og greinargóðar upplýsingar fást um leigumarkaðinn
Skylda til að skrá leigusamninga um húsnæði sem leigt er til búsetu í leiguskrá er mikilvæg til að heildstæðar og greinargóðar upplýsingar fáist um leigumarkaðinn, meðal annars um þróun leiguverðs og tegund og lengd leigusamninga.
„Þær upplýsingar skipta miklu máli við gerð leigusamnings, ekki síst við ákvörðun leiguverðs, en eru ekki síður mikilvægar til að undirbyggja upplýstar ákvarðanir stjórnvalda við stefnumótun í málaflokknum,“ segir félags- og húsnæðismálaráðherra.
„Upplýsingarnar koma einnig til með að auðvelda eftirlit með búsetu í óviðunandi húsnæði, sem munu meðal annars nýtast slökkviliðinu, en einnig með svartri leigustarfsemi. Þessar upplýsingar geta því til að mynda nýst til að koma auga á svarta skammtímaleigu íbúðarhúsnæðis til ferðamanna. Leiguskráin getur því nýst sem mikilvægt verkfæri stjórnvalda á mörgum sviðum.“

