Matvælastofnun varar við neyslu á Taðreyktri bleikju og Reyktum silungi frá Hnýfli ehf. vegna þess að það greindist Listeria monocytogenis yfir mörkum í vörunni. Fyrirtækið hefur í samráði við Matvælastofnun innkallað vöruna af markaði.
Listeria monocytogenes getur orsakað sjúkdóm bæði hjá mönnum og dýrum og kallast þessi sjúkdómur listeriosis. Einkenni sjúkdómsins eru mild flensueinkenni, vöðvaverkir, hiti og stundum ógleði og niðurgangur. Alvarlegri einkenni eru heilahimnubólga í ungbörnum, blóðeitrun og getur sjúkdómurinn einnig valdið fósturláti. Í einstaka tilfellum getur bakterían valdið dauða, þá er yfirleitt um að ræða einstaklinga sem eru með skert ónæmiskerfi. Áhættuhópar eru aldraðir, barnshafandi konur, ófædd og nýfædd börn og einstaklingar með skert ónæmiskerfi. Hópsýkingar af völdum L.monocytogenes eru mjög sjaldgæfar, oftast er um að ræða einstaklingssýkingar.
Innköllunin nær til eftirfarandi vara:
- Vöruheiti: Taðreykt bleikja og Reyktur silungur
- Framleiðandi: Hnýfill ehf, Óseyri 22, 603 Akureyri
- Síðasti notkunardagur: 28. nóvember 2025
- Dreifing: Verslanir Samkaupa, Hagkaupa og Krónunnar.
Viðskipavinir sem hafa keypt vöruna skulu ekki neyta hennar heldur farga eða skila í verslun til að fá endurgreitt.

Ítarefni:
- Fréttatilkynning frá Hnýfli ehf
- Listi Matvælastofnunar yfir innkallanir
- Matvælastofnun á facebook
- Fræðsla um listeríu á heimasíðu Matvælastofnunar

