• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 4. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Enginn neyddur til að búa á götunni

Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins

,,Rétt skrimtir á aumlegum tveimur milljónum á mánuði“

,,Töluðu sig rænulaus í 150 klukkustundir til að verja ríkustu fimm fjölskyldur landsins sem lúra á 600 þúsund milljónum"

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
4. febrúar 2026
in Fréttir, Innlent
A A
0

Formaður Sjálfstæðisflokksins telur lágmarksframfærslu duga öldruðum og öryrkjum

Heimir Már Pétursson skrifar pistil á facebook
„Ég er ekki viss um að það sé sátt um það hjá þjóðinni. Að það sé meiri hvati til að vera innan bótakerfisins en á vinnumarkaði,” sagði Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins í dag í umræðum um frumvarp félags- og húsnæðismálaráðherra um að greiðslur almannatrygginga hækki árlega í takti við launavísitölu.

Hvað þýðir þetta? “Að það sé meiri hvati að vera innan bótakerfisins“ en segjum … að vera aldraður eða öryrki?

Og Guðrún opinberar sýn sína á hlutverk almannatryggingakerfisins:

„Við erum auðvitað öll sammála um markmiðið, við viljum standa með eldra fólki og öryrkjum. En þarna er verið að breyta hlutverki bóta úr því að tryggja lágmarksframfærslu, sem hefur verið hlutverk bótakerfisins, yfir í að bótakerfið eigi að fylgja meðallaunum.“

Já hún vill “standa vörð” ….um að tryggja “lágmarksframfærslu” … með öðrum orðum að fólk sem hefur enga innkomu nema frá almannatryggingum skrimti. Ekki meira en það.

Sjálf rétt skrimtir hún á aumlegum tveimur milljónum á mánuði og safnar í digra lífeyris- og séreinarsjóði og sér ekki fram á að láta sér nægja “lágmarksframfærslu” í ellinni. Hún er í öruggri höfn.

Guðrún og félagar hennar í SjálfstæðisMiðflokknum töluðu sig rænulaus í 150 klukkustundir í vor og sumar til að verja ríkustu fimm fjölskyldur landsins sem lúra á 600 þúsund milljónum í eigið fé. Nú á að blaðra sig ringluð og hás til að koma í veg fyrir að greiðslur til eldri borgara og öryrkja fylgi launaþróun.

Það getur ekki verið ljósara hvar hagsmunirnir liggja,

Í dag eru fullar greiðslur almannatrygginga um 110.000kr MINNI en LÆGSTU mánaðarlaun og munurinn hefur aukist ár frá ári undanfarin áratug. Frumvarpinu er ætlað að stöðva þessa kjaragliðnun.

En nei, það gengur ekki að mati Guðrúnar og félaga hennar í MiðSjálfstæðisflokknum:

„Ég hef mjög miklar áhyggjur af þessu frumvarpi og af öllum vondu málum ríkisstjórnarinnar finnst mér þetta það versta,“ segir iðnrekandinn sem fær góðan arð af Kjörís auk launa sem eru um átta sinnum hærri en “lágmarksframfærslan” sem hún vill standa vörð um fyrir þá sem hafa enga innkomu umfram greiðslur almannatrygginga.

Því um það snýst málið. Það snýst ekki um að fólk „kjósi frekar að verða gamalt eða öryrkjar“ en að vinna vegna þess að greiðslur almannatrygginga eru svo rausnarlegar.

Hvers vegna skyldi Sjálfstæðisflokknum hafa verið hafnað í síðustu kosningum? Fyrir ótakmarkaðan náungakærleik sinn? Varla.

Umræða
Share2Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Níu handteknir vegna innflutnings á kókaíni

    Hand­tek­inn í aðgerð sér­sveit­ar og lög­reglu á Sel­fossi

    11 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Bandaríski sjóherinn sveimar yfir Selfossi, Hveragerði og Ölfusi

    77 deilingar
    Share 31 Tweet 19
  • Reyna að sverta Flokk fólksins

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Alþingismanni hótað

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Gekk um nakinn í íbúðarhverfi

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?