Helstu atriði úr dagbók lögreglu frá 05-17. Þegar þetta er ritað gista tveir í fangageymslu lögreglu. Alls eru 166 mál skráð í kerfinu á umræddu tímabili. Listinn er ekki tæmandi.
Lögreglustöð 1
- Tilkynnt um umferðarslys í hverfi 105, minniháttar meiðsli á fólki, afgreitt á vettvangi
- Tilkynnt um líkamsárás í hverfi 105, minniháttar meiðsli afgreitt með skýrslugerð
- Ökumaður stöðvaður í hverfi 108 vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna, laus að lokinni blóðsýnatöku
- Almennt eftirlit og aðstoð
Lögreglustöð 2
- Tilkynnt um innbrot í gám í hverfi 221 og þaðan stolið verkfærum, gerandi ókunnur
- Almennt eftirlit og aðstoð
Lögreglustöð 3
- Ökumaður stöðvaður í hverfi 109 vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna, laus að lokinni blóðsýnatöku
- Ein í annarlegu ástandi handtekinn í hverfi 200 fyrir ofbeldi gagnvart opinberum starfsmanni, hún vistuð í fangageymslu sökum ástands
- Almennt eftirlit og aðstoð
Lögreglustöð 4
- Tilkynnt um umferðarslys í hverfi 110, fólksbifreið ekið aftan á gröfu, einn slasaður og fluttur á bráðamóttöku til skoðunar
- Almennt eftirlit og aðstoð
Umræða

