Hugleiðingar veðurfræðings
Í dag verður norðaustan 8-13 m/s. Dálítil él á norðan- og austanverðu landinu, en annars bjart að mestu. Frost 2 til 7 stig.
Á morgun verður norðlæg átt 3-8, en aðeins hvassara austast á landinu. Áfram dálítil él norðan- og austantil, en léttskýjað sunnan heiða. Samt líkur á dálitlum éljum syðst eftir hádegi. Frost 2 til 10 stig, kaldast inn til landsins.
Á föstudag gera spár ráð fyrir breytilegri átt. Stöku él á víð og dreif og áfram frost um mest allt land.
Um helgina er útlit fyrir fremur hægar breytilegar áttir. Sums staðar dálítil snjókoma og áfram kalt í veðri. Spá gerð: 11.02.2026 05:09. Gildir til: 12.02.2026 00:00.
Veðurhorfur á landinu
Norðaustan 5-13 m/s og dálítil él norðan- og austanlands, en bjart að mestu sunnan heiða.
Norðlæg átt 3-8 á morgun, en 8-13 austast á landinu. Stöku él fyrir norðan og austan, en léttskýjað sunnan- og vestantil. Líkur á dálitlum éljum syðst eftir hádegi. Frost 2 til 7 stig að deginum. Spá gerð: 11.02.2026 07:24. Gildir til: 13.02.2026 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á föstudag:
Breytileg átt 3-8 m/s og skýjað með köflum, en kaldi eða strekkingur norðvestantil og svo austantil með kvöldinu. Dálítil él við ströndina, en þurrt að mestu um sunnanvert landið fram eftir degi. Frost víða 4 til 14 stig.
Á laugardag:
Austlæg átt 3-10 m/s og skýjað með köflum. Dálítil él við ströndina, en þurrt að mestu vestantil. Frost víða á bilinu 4 til 16 stig, kaldast norðaustantil, en um og yfir frostmarki við Suðurströndina að deginum og hvessir þar seinnipartinn.
Á sunnudag:
Austlæg átt 5-13 m/s, en hægari norðaustantil. Víða léttskýjað, en dálítil él norðan- og austantil. Herðir á frosti.
Á mánudag:
Fremur hæg norðlæg eða breytileg átt og skýjað með köflum. Bjart að mestu suðaustantil, en dálítil él norðanlands. Áfram kalt í veðri.
Á þriðjudag:
Útlit fyrir norðaustlæga átt og snjókomu eða él með köflum norðanlands og síðar syðst með kvöldinu. Áfram kalt í veðri, en um og yfir frostmark við suðurströndina.
Spá gerð: 11.02.2026 08:41. Gildir til: 18.02.2026 12:00.

