Hér eru nokkur mál úr dagbók lögreglu á tímabilinu 15. febrúar kl. 05:00 til 17:00. Listinn er ekki tæmandi
Lögreglustöð 1 – Austurbær- Miðbær-Vesturbær-Seltjarnarnes:
- Tilkynnt um minniháttar umferðaóhapp eingatjón ekki slys á fólki, lögregla fór á vettvang.
- Tilkynnt um mann reyna brjótast inn á veitingastað, farin af vettvangi þegar lögregla kom, sami maður tilkynntur með mögulegt þýfi, handtekinn grunaður um innbrot og þjófnað einnig var hann með hnífa og hamar á sér, hann var vistaður í fangaklefa vegna rannsókn málsins.
- Ökumaður handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna, einnig með útrunnin ökuréttindi, hann var látin laus að blóðsýnatöku lokinni.
- Tilkynnt um þjófnað á hóteli, lögregla fór á vettvang til að rannsaka málið.
- Tilkynnt um umferðaóhapp, aftan á keyrsla, lögregla fór á vettvang ásamt sjúkraliði, einn með áverka á baki eftir óhappið.
- Óskað eftir aðstoð lögreglu um að vísa sofandi aðila á bókasafni út sem neitaði að fara, lögregla fór á vettvang og vísaði aðili út.
- Tilkynnt um þjófnað í matvöruverslun, lögregla fór á vettvang.
Lögreglustöð 2 – Hafnarfjörður- Garðabær- Álftanes:
- Ökumaður handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum áfengis, hann var látin laus að blóðsýnatöku lokinni.
Umræða

