Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að auglýsa embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri og forstjóra Heilbrigðisstofnunar Austurlands laus til umsóknar. Skipunartími forstjóra SAk rennur út 31. ágúst næstkomandi og skipunartími forstjóra HSA rennur út 31. desember nk.
Hildigunnur Svavarsdóttir, forstjóri SAk, hefur óskað eftir því að láta af störfum nú þegar og hefur náðst samkomulag þar um. Embætti forstjóra SAk verður því auglýst innan skamms en Erla Björnsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðssviðs sjúkrahússins, mun gegna embættinu þar til nýr forstjóri hefur verið skipaður. Embætti forstjóra HSA verður auglýst síðar á árinu.
Umræða

