Hringvegurinn við Skóga á Suðurlandi er lokaður vegna umferðarslyss. Samkvæmt upplýsingum frá Þorsteini M. Kristinssyni aðalvarðstjóra hjá lögreglunni á Suðurlandi var árekstur tveggja bíla á gatnamótum Suðurlandsvegar og Skógavegar.
Ríkisútvarpið greindi fyrst frá slysinu og þar kemur fram að einn sé slasaður en Þorsteinn hafði ekki upplýsingar um hversu margir voru í bílunum tveimur. Vegurinn verður lokaður í einhvern tíma.
Umræða

