Hér eru nokkur mál úr dagbók lögreglu á tímabilinu 16. febrúar kl. 05:00 til 17:00. Listinn er ekki tæmandi.
Lögreglustöð 1 – Austurbær- Miðbær-Vesturbær-Seltjarnarnes:
- Óskað aðstoðar vegna aðila til vandræða í hverfi 107.
- Tilkynnt um grunsamlegar mannaferðir í hverfi 104.
- Óskað aðstoðar vegna hnupls úr verslun í hverfi 108.
- Ökumaður sektaður fyrir svigakstur í hverfi 101.
Lögreglustöð 2 – Hafnarfjörður- Garðabær- Álftanes:
- Óskað aðstoðar vegna umferðarslyss í hverfi 221. Þar varð ekki slys á fólki.
- Ökumaður sektaður fyrir of hraðan akstur og akstur án ökuréttinda í hverfi 221.
- Óskað aðstoðar vegna gróðurelda í hverfi 221.
Lögreglustöð 3 – Kópavogur- Breiðholt:
- Óskað aðstoðar vegna umferðarslyss í hverfi 201, en þar var ekið á gangandi vegfaranda. Sá hlaut minniháttar áverka á fæti.
- Samfélagslögreglumenn héldu kynningar í grunnskólum í hverfum 201 og 203.
Lögreglustöð 4 – Grafarvogur- Mosfellsbær- Árbær:
- Óskað aðstoðar vegna vinnuslyss í hverfi 110.
Umræða

