Lögreglan í Lundúnum handtók í dag Peter Mandelson, fyrrverandi sendiherra Bretlands í Bandaríkjunum vegna rannsóknar á meintu misferli í opinberu starfi
Handtakan er til kominn í vegna ásakana um meint saknæm tengsl við fjárfestinn og kynferðisbrotamanninn Jeffrey Epstein. Lögreglan rannsakar hvort Mandelson hafi lekið viðkvæmum og mikilvægum innherjaupplýsingum til Epsteins. Hann var rekinn úr starfi í september og hætti í lávarðadeild þingsins eftir birtingu skjalanna.
Þá var Andrew Mountbatten-Windsor, fyrrverandi Bretaprins, handtekinn í síðustu viku og einnig grunaður um misferli í opinberu starfi og fleira.
Umræða

