Hugleiðingar veðurfræðings
Í dag verður vaxandi austan- og suðaustanátt, 10-18 m/s síðdegis. Rigning eða slydda með köflum, en lengst af þurrt á Norðausturlandi fram á kvöld. Svo snýst í suðlæga átt 8-13 með skúrum eða slydduéljum seinnipartinn, fyrst suðvestanlands. Hiti 0 til 6 stig yfir daginn.
Suðvestan 10-18 m/s og skúrir eða él á morgun, en lægir síðdegis. Styttir upp fyrir norðan, en rigning eða snjókoma með köflum á sunnan- og austanverðu landinu. Hiti 1 til 6 stig. Vaxandi norðaustanátt með snjókomu á Vestfjörðum annað kvöld.
Útlit fyrir norðanhríð norðvestantil á landinu, miðvikudag til föstudags. Spá gerð: 09.03.2026 05:15. Gildir til: 10.03.2026 00:00.
Veðurhorfur á landinu
Gengur í suðaustan 10-18 m/s með rigningu, slyddu eða snjókomu, en lengst af úrkomulítið norðaustantil. Hlýnandi, hiti 0 til 7 stig síðdegis. Hægari á Suður- og Vesturlandi í kvöld og skúrir eða slydduél.
Suðvestan 8-15 á morgun og dálitlar skúrir eða él, en styttir upp á Norður- og Norðausturlandi. Lægir seinnipartinn og kólnar heldur, en gengur í allhvassa norðaustanátt á Vestfjörðum annað kvöld.
Spá gerð: 09.03.2026 07:39. Gildir til: 11.03.2026 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á miðvikudag:
Norðlæg eða breytileg átt 8-15 m/s, en hægari suðvestantil. Snjókoma eða slydda norðanlands, en styttir upp sunnan heiða. Hiti nálægt frostmarki.
Á fimmtudag:
Norðan og norðvestan 13-20, en hægari um landið austanvert. Snjókoma norðanlands, og él suðvestantil, en þurrt á Suðausturlandi. Hiti um eða undir frostmarki.
Á föstudag:
Norðvestan 10-18, en dregur úr vindi þegar líður á daginn. Snjókoma með köflum norðan- og vestanlands, en þurrt að mestu suðaustantil. Hiti breytist lítið.
Á laugardag:
Norðaustlæg eða breytileg átt og snjókoma eða él, en þurrt að mestu á Suður- og Austurlandi. Frost 0 til 7 stig.
Á sunnudag:
Norðanátt og snjókoma, en þurrt sunnan heiða. Áfram svalt.
Spá gerð: 09.03.2026 08:31. Gildir til: 16.03.2026 12:00.

