Atvinnuvegaráðherra hefur ákveðið að veita Samkeppniseftirlitinu 30 millj. kr. viðbótarframlag til að vinna að áherslum stjórnar um virka samkeppni á dagvörumörkuðum.
Á síðustu árum hafa orðið ýmsar breytingar á dagvörumarkaði og þeim fyrirtækjum sem annast sölu, framleiðslu og innflutning á dagvöru. Dagvöruverð hér er með því hæsta sem þekkist í Evrópu og kaup á dagvöru eru einn af stærstu kostnaðarliðum heimila og þar af leiðandi stór þáttur í þróun verðbólgu. Af þessum sökum er mikilvægt að samkeppnisaðstæður á dagvörumörkuðum, og tengdum mörkuðum sem hafa áhrif á dagvöruverð, sæti skoðun.
Framangreind ráðstöfun er hluti af almennri viðleitni stjórnvalda til að ná niður verðbólgu og samræmist áherslum í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um mikilvægi virkrar samkeppni og öfluga neytendavernd.
„ Það er mikilvægt að Samkeppniseftirlitið hafi bolmagn til að fylgja eftir áherslum stjórnar eftirlitsins. Í þeim áherslum er sérstaklega fjallað um mikilvægi samkeppni á dagvörumörkuðum, m.a. flutningamarkaði og eldsneytismarkaði. Er þetta mikilvægur liður í aðgerðum stjórnvalda til að ná niður verðbólgu og til að efla virka samkeppni og neytendavernd,“ segir Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra.

