• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 27. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Embætti sýslumanns laust til umsóknar

Embætti sýslumanns laust til umsóknar

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
27. mars 2026
in Fréttir, Innlent
A A
0

Dómsmálaráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti sýslumanns sem stofnað verður 1. janúar 2027 við sameiningu núverandi níu sýslumannsembætta.

Frumvarp dómsmálaráðherra um sameinað embætti sýslumanns var nýverið samþykkt á Alþingi og markar mikilvægt skref í einföldun og eflingu opinberrar þjónustu. Núverandi níu sýslumannsembætti verða sameinuð í eitt öflugt embætti sýslumanns og ríkisstofnunum því fækkað um 5%. Með nýju embætti verður unnið að því að samræma þjónustu, auka skilvirkni og tryggja jafnt aðgengi almennings að þjónustu sýslumanna um land allt.

Leitað er að framsýnum leiðtoga með skýra sýn og getu til að leiða sameininguna, tryggja samfellu í lögbundinni starfsemi og móta sameinað embætti á grunni reynslu, þekkingar og styrkleika núverandi embætta, með það að markmiði m.a. að fjölga störfum á landsbyggðinni og stuðla að jöfnu aðgengi að opinberri þjónustu

Hjá sýslumanni munu starfa um 250 starfsmenn í fjölbreyttum störfum á starfsstöðvum víða um land. Ekki er gert ráð fyrir að sýslumaður hafi aðsetur á höfuðborgarsvæðinu.

Hlutverk og ábyrgð

Sýslumaður fer með framkvæmdarvald og stjórnsýslu ríkisins í héraði eftir því sem lög, reglugerðir og önnur stjórnvaldsfyrirmæli kveða á um. Auk lögbundinna verkefna annast sýslumaður framkvæmd verkefna fyrir aðrar ríkisstofnanir eða stjórnvöld samkvæmt samningi.

Sýslumaður fer með yfirstjórn embættisins og ber ábyrgð á stefnumótun, skipulagi, mannauðsmálum og rekstri. Þá gegnir embættið mikilvægu hlutverki í framkvæmd stjórnsýslu ríkisins í héraði og sinnir fjölbreyttum verkefnum samkvæmt lögum og samningum við önnur stjórnvöld.

Stofnun hins nýja embættis er eitt stærsta breytingaverkefnið á sviði stjórnsýslu á undanförnum árum. Sýslumaður mun leiða undirbúning og innleiðingu sameiningarinnar í nánu samstarfi við ráðuneytið, með áherslu á fagmennsku, stöðugleika og traust.

Dómsmálaráðherra skipar í embættið til fimm ára í senn og skipað verður í embættið þegar nefnd sem metur hæfni umsækjenda hefur lokið störfum. Umsóknarfrestur er til og með 14. apríl nk. og skal senda umsókn á starf@dmr.is. Nöfn allra umsækjenda verða birt á vef ráðuneytisins að liðnum umsóknarfresti.

Nánari upplýsingar um starfið og hæfniskröfur er að finna á Starfatorgi.

Eitt sýslumannsembætti í stað níu

Umræða
Share2Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Sala ríkisins á Íslandsbanka og erindi Arion banka um sameiningu

    Daði Már Kristófersson fær uppsagnabréf án áminningar

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Fólk skilið eftir án tekna mánuðum saman hjá Virk og Tryggingastofnun

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Embætti sýslumanns laust til umsóknar

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Lögreglumenn staðfestu tengsl við Hamas hryðjuverkasamtökin

    5 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Kona sökuð um kynferðislega misnotkun, barsmíðar, svelti, heilaþvott og fleira

    26 deilingar
    Share 10 Tweet 7
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?