• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 30. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Fólk á hinum Norðurlöndunum á auðveldara með að samræma vinnu og fjölskyldulíf

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
22. júlí 2019
in Afþreying, Fréttir, Innlent
A A
0

 
Sumarfríin eru árstíminn til að njóta lífsins með fjölskyldu og vinum enda getur verið erfitt að finna tíma fyrir gæðastundir í amstri dagsins. Þó gott sé að eiga góðar stundir saman á sumrin þarf að fjölga þeim á öðrum tímum ársins. BSRB vill fjölskylduvænt samfélag og styttri vinnuviku til að ná því markmiði.

Þó það sé gott að eiga gæðastundir saman í sumarfríinu verður að huga að því að fjölga þeim á öðrum tímum ársins, segir á vef BSRB

Þeir sem hafa heimsótt vini eða ættingja sem búa á hinum Norðurlöndunum hafa eflaust heyrt af lífinu hjá frændum okkar í Skandinavíu. Þar virðist launafólk eiga auðveldara með að samræma vinnu og fjölskyldulíf en við þekkjum vel flest hér á landi.
Ein af skýringunum er að vinnudagurinn er almennt styttri, launafólk vinnur færri yfirvinnustundir og sveigjanleikinn er almennt meiri. Ekki má gleyma mun meiri réttindum foreldra í fæðingarorlofi sem fá almennt meiri tíma með börnum sínum áður en snúa þarf aftur til vinnu.
Fjölskylduvænt samfélag hefur verið eitt af stóru baráttumálum BSRB lengi. Fjallað er um þetta mikilvæga mál í stefnu bandalagsins sem samþykkt var á 45. þingi BSRB síðasta haust.
Bandalagið telur mikilvægt að stefna stjórnvalda hafi samþættingu fjölskyldu- og atvinnulífs að leiðarljósi og að samhliða vinnu við að eyða kynbundnum launamun verði möguleikar foreldra til að verja gæðatíma með fjölskyldunni aukinn, til dæmis með því að lengja fæðingarorlofið. Þá þarf að lögfesta rétt barna til öruggrar gjaldfrjálsrar dagvistunar af hálfu hins opinbera strax og fæðingarorlofi lýkur.

Vinnuvikan verði 35 stundir

Langur vinnudagur hefur neikvæð áhrif á samþættingu fjölskyldulífs og vinnu. BSRB stefnir á að stytta vinnuvikuna úr 40 stundum í 35 án launaskerðingar og að vinnuvika vaktavinnufólks verði 80 prósent af vinnutíma dagvinnufólks.
BSRB tekur þátt í tveimur tilraunaverkefnum um styttingu vinnuvikunnar sem hafa sýnt greinilega fram á mikilvægi þess að stytta vinnuvikuna. Nánar er fjallað um þau verkefni hér.

Dregið verði úr árekstrum milli skóla og vinnu

BSRB telur einnig mikilvægt að skoða betur samspil atvinnulífs, skóla og heimila með það að markmiði að draga úr árekstrum og minnka álagið á launafólk. Foreldrar þekkja allir hversu erfitt það getur verið að leysa úr vandamálum tengdum starfsdögum, vetrarfríum og öðrum dögum þar sem skólar og leikskólar eru lokaðir.
Við því mætti til dæmis bregðast með sérstökum frídögum til að koma til móts við þarfir foreldra. Einnig þarf að auka réttindi fólks til fjarveru frá vinnu til að sinna veikum börnum, maka, foreldrum eða öðrum nákomnum. Birtist á vef BSRB.
Lestu meira um fjölskylduvænt samfélag í stefnu BSRB um jafnréttismál.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    25 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    21 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    84 deilingar
    Share 34 Tweet 21
  • Strandveiðisjómaður lést

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?