„Áfengi er mjög hættulegur og skaðlegur vímugjafi í óhófi,“ segir yfirlæknir á bráðamóttöku Landspítalans.
Sjaldan ef nokkurn tímann hafa eins fáir leitað á bráðamóttöku Landspítalans á nýársnótt vegna flugeldaslysa, en þónokkuð var um að fólk kæmi þangað í kjölfar óhóflegrar áfengisneyslu. Öllu meiri erill var hjá lögreglunni í nótt. Þetta kemur fram í frétt hjá ríkisútvarpinu í dag þar sem fjallað er ítarlega um málið.
Áttatíu og sjö mál voru skráð í dagbók lögreglunnar í nótt, ýmist vegna ölvunaraksturs en einnig bar nokkuð á líkamsárásum. Þá var slökkvilið með nokkurn viðbúnað við iðnaðar- og verslunarhúsnæði við Bíldshöfða í Reykjavík vegna mikils vatnsleka og þegar mest lét voru tíu frá tveimur stöðvum á staðnum við að dæla úr húsinu. Aðgerðum lauk um klukkan sex í morgun. Segir í fréttinni
Á bráðamóttöku Landspítalans var nokkuð rólegt, sem telst til tíðinda því þar er almennt mjög mikið álag þegar nýtt ár gengur í garð. „Að meðaltali er þetta tíu manns sem hafa komið þessa nótt síðasta áratuginn vegna flugeldaáverka og við verðum að vona að fólk hafi bara hlustað á forvarnaráðleggingar og farið varlega við notkun á flugeldum,“ segir Hjalti Már Björnsson, yfirlæknir á bráðamóttökunni.
Í ár leitaði hins vegar aðeins einn á bráðamóttökuna með minniháttar áverka vegna flugeldaslyss. Meira bar þó á því að fólk kæmi vegna óhóflegrar notkunar á áfengi.
„Áfengi er mjög hættulegur og skaðlegur vímugjafi í óhófi og fylgir bæði ofbeldi og síðan mikil andleg vanlíðan. Síðan er talsvert um slys þar sem fólk hreinlega dettur og hlýtur áverka þannig að það var mun meira um áfengistengd vandamál á bráðamóttökunni heldur en flugeldavandamál þessi áramótin.“ Segir Hjalti Már Björnsson, yfirlæknir á bráðamóttökunni í viðtali við RÚV.