Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, sæmdi fjórtán manns hinni íslensku fálkaorðu í morgun. Fálkaorðuhafarnir eru:
- Auður Hildur Hákonardóttir, myndlistarkona og rithöfundur, riddarakross fyrir framlag til myndlistar og störf í þágu kvennabaráttu.
- Elísabet Gunnarsdóttir, knattspyrnuþjálfari, riddarakross fyrir framlag til kvennaknattspyrnu og annarra íþrótta.
- Erna Sif Arnardóttir, dósent við Háskólann í Reykjavík og svefnfræðingur, riddarakross fyrir framlag til nýsköpunar og svefnrannsókna.
- Gylfi Þór Þorsteinsson, teymisstjóri hjá Rauða krossinum á Íslandi, riddarakross fyrir störf í þágu samfélags og mannúðar.
- Helga Þorbergsdóttir, hjúkrunarstjóri á heilsugæslustöðinni í Vík, riddarakross fyrir framlag til heilbrigðisþjónustu og sveitarstjórnar- og félagsstarfa í heimabyggð.
- Hrafnhildur Gunnarsdóttir, kvikmyndagerðarmaður, riddarakross fyrir heimildarmynda- og þáttagerð og framlag til vitundarvakningar á sviði jafnréttismála.
- Jenný Karlsdóttir, handverkskona og kennari, riddarakross fyrir framlag til varðveislu íslenskrar alþýðu- og handverksmenningar.
- Jón Kristinsson, arkitekt, riddarakross fyrir frumkvöðlastarf í vistvænni húsagerðarlist á alþjóðavettvangi.
- Karel Ingvar Karelsson, fyrrverandi skipstjóri, riddarakross fyrir framlag til sjómennsku ungs fólks og eflingar sjómannastéttarinnar.
- Knútur Rafn Ármann, framkvæmdastjóri og eigandi Friðheima, riddarakross fyrir frumkvöðlastarf á sviði matvælaframleiðslu, ferðaþjónustu og atvinnuuppbyggingar.
- Margrét Bóasdóttir, söngkona og söngstjóri, riddarakross fyrir framlag til tónlistarflutnings og kórmenningar.
- Reynir Pétur Steinunnarson, garðyrkjubóndi, riddarakross fyrir afrek og framgöngu í þágu fatlaðra.
- Sigurður Harðarson, rafeindavirkjameistari, riddarakross fyrir störf á sviði fjarskipta- og öryggismála í þágu björgunarsveita, lögreglu og brunavarna.
- Vilmundur G. Guðnason, forstöðulæknir Hjartaverndar og prófessor, riddarakross fyrir framlag til rannsókna og forvarna á sviði hjarta- og æðasjúkdóma.
Umræða