• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Login
Laugardagur, 3. júní 2023
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
Frettatiminn
No Result
View All Result

Barna- og húsnæðismál  fá aukið vægi í starfsemi ráðuneytisins

ritstjorn by ritstjorn
1. febrúar 2019
in Fréttir, Innlent
0
Share on FacebookShare on Twitter
Nýtt skipurit hins nýja félagsmálaráðuneytis tók gildi í dag 1. febrúar.  Ráðuneytinu verður nú skipt upp í fjórar fagskrifstofur og þar fá barna- og húsnæðismál meira vægi en áður hefur verið. Er það í samræmi við mikilvægi málaflokkanna og viðfangsefnin framundan. Einnig er það í beinu samhengi við áherslur Ásmundar Einars Daðasonar sem frá áramótum ber titilinn félags- og barnamálaráðherra.   Með nýju skipuriti verður innleitt verklag verkefnisstjórnunar í daglegu starfi og skipuð vinnuteymi um einstök verkefni sem eru aðkallandi og mörkuð í upphafi og enda.  Teymin geta verið fleiri eða færri, allt eftir viðfangsefnum og álagi hverju sinni.  Þau munu skipa sérfræðingar af fagskrifstofum ráðuneytisins og sérfræðingar úr stofnunum ráðuneytisins ef aðstæður krefjast.

Fagskrifstofur ráðuneytins verða sem hér segir:

  1. Skrifstofa barna- og fjölskyldumála.
  2. Skrifstofa húsnæðis og lífeyrismála.
  3. Skrifstofa vinnumarkaðar og starfsendurhæfingar.

Þá starfar fagskrifstofa fjárlaga sem stoðdeild þvert á allar aðrar fagskrifstofur ráðuneytisins auk Gæða- og eftirlitsstofnunar félagsþjónustu og barnaverndar .
GEF/Gæða- og eftirlitsstofnun félagsþjónustu og barnaverndar er sérstök ráðuneytisstofnun sem starfar á forræði ráðuneytisins en starfar sjálfstætt og óháð ráðuneytinu að öðru leiti.
Við uppskiptingu velferðarráðuneytisins sl. áramót var ákveðið að innri starfsemi ráðuneytisins verði innt af hendi hjá heilbrigðisráðuneytinu en að félagsmálaráðuneytið kaupi þá þjónustu af heilbrigðisráðuneytinu samkvæmt þremur þjónustusamingum sem verið er að ganga frá.  Þeir taka til:

  1. Stoðþjónustu og hlutdeild í sameiginlegum kostnaði – m.a. bókhalds og rekstrarþjónusta, launaumsjón, málaskrá, mötuneyti og húsnæði
  2. Þjónustu hagmála – m.a.  gerð reiknilíkana og kostnaðargreiningar, framsetning tölulegra gagna og skýrslugerð og
  3. Þjónustu mannauðsmála – m.a. ráðgjöf og stuðning við stjórnendur í mannauðsmálum, fræðslustarf, starfsþróun, móttaka nýrra starfsmanna, innri vefur og innleiðingu breytinga.

Á næstunni verða störf hinna þriggja nýju fagskrifstofustjóra auglýstar til umsóknar.

  • ,,Þess vegna sit ég hér og bölva“

    ,,Þess vegna sit ég hér og bölva“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Bjartviðri og allt að 20 stiga hiti

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Ný gögn í Madeleine McCann málinu

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Björguðu sex manns úr vatni

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Mótmæli við Alþingi – ,,Vanhæf ríkisstjórn“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
ADVERTISEMENT

Fréttatíminn © 2023

No Result
View All Result
  • Home
  • Landing Page
  • Buy JNews
  • Support Forum
  • Contact Us

Fréttatíminn © 2023

Welcome Back!

Login to your account below

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?