• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 1. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Ekkert til fyrirstöðu að Tryggingastofnun ríkisins greiði öryrkjum strax skv. réttindum

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
1. febrúar 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

„Lögbundinn réttur,“ segir Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, sem er alveg skýr um að TR muni ekki skorta fé til að leiðrétta ára og áratuga brot á hópi örorkulífeyrisþega vegna búsetuskerðinga.

Ekkert er því til fyrirstöðu að Tryggingastofnun ríkisins hefji útgreiðslur samkvæmt réttum útreikningi vegna búsetu nú þegar. Reiknireglan liggur fyrir og TR hefur allar upplýsingar sem þarf. Fjármálaráðherra er skýr um að ekki þurfi sérstakar fjárheimildir til þess að fólk njóti lögbundinna réttinda.
Þrátt fyrir að TR hafi í byrjun janúar sagst myndu kynna breytta framkvæmd í lok janúar, bólar ekkert á breytingum. Félagsmálaráðuneytið hefur viðurkennt að TR hafi hlunnfarið hundruð örorkulífeyrisþega um yfir hálfan milljarð króna á ári, árum og áratugum saman.

Klippt og skorið

Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður ÖBÍ, skrifaði stjórn Tryggingastofnunar ríkisins, þann 29. janúar. Þar benti hún stjórninni á að enn hefði útreikningur vegna búsetuhlutfalls ekki verið leiðréttur, þrátt fyrir að margir mánuðir hafi liðið frá því að Umboðsmaður birti álit sitt.

„Þar er bara um lögbundin réttindi að ræða sem við verðum að uppfylla.“ – Bjarni Benediktsson, 31. janúar 2019

Þuríður Harpa er mjög skýr um það í bréfi sínu til stjórnar TR „að ekkert sé því til fyrirstöðu að hefja útgreiðslur samkvæmt réttum útreikningi nú þegar. Útreiknireglan liggur fyrir og TR hefur allar upplýsingar sem þarf.“

Rangar fullyrðingar

Í bréfinu fer Þuríður Harpa yfir yfirlýsingu TR frá 7. janúar. Hún bendir á vafasama fullyrðingu TR um að úrskurðarnefnd almannatrygginga og úrskurðarnefnd velferðarmála hafi „í gegnum tíðina“ staðfest úrskurði TR um búsetuútreikning. Þetta hefur endurómað í fjölmiðlum og jafnvel í máli félagsmálaráðherra á Alþingi.

Ekki bólar enn á því og heldur ekki að fólk fái greitt í samræmi við álit Umboðsmanns og viðurkenningu ráðuneytisins.

„Með þessu er gefið til kynna að framkvæmdin hafi verið óumdeild til fjölda ára. Þetta er rangt og ÖBÍ gerir alvarlegar athugasemdir við að þessu sé haldið fram.“

Fjármálaráðherra skýr

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, var á Alþingi, 31. janúar, spurður út í búsetuskerðingarnar og fjárheimildir til að leiðrétta hlut þeirra sem voru hlunnfarnir af TR. Hann var skýr í máli sínu og sagði að fjármögnun væri sjálfsögð.

Ítrekað slegið á putta TR

„.Fjármögnun þess [skiptir] í sjálfu sér engu máli, vegna þess að þar er bara um lögbundin réttindi að ræða sem við verðum að uppfylla. Það er þá bara loforð sem stendur. Það er þá bara krafa sem fólk á á ríkið og það reiknast af ríkissjóði, hvort sem menn hafa fjármagnað það sérstaklega eða ekki. Við bíðum niðurstöðu þessarar yfirferðar um heildarfjárhæðina.“
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    35 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    25 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    86 deilingar
    Share 34 Tweet 22
  • Risagjaldþrot Heima ehf. – Heimahúsið í sama húsnæði

    40 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Strandveiðisjómaður lést

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?