-2.2 C
Reykjavik
Sunnudagur - 26. mars 2023
Auglýsing

Lögreglan óskar eftir vitnum að umferðarslysi í Garðabæ

Auglýsingspot_img
Auglýsing

Nýjar fréttir

Auglýsing

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðarslysi sem varð á Reykjanesbraut í Garðabæ í gærmorgun, þriðjudaginn 31. janúar.

Tilkynning um slysið barst kl. 8.21, en það varð á móts við IKEA þar sem rákust saman þrjár bifreiðar. Talið er að ein þeirra hafi bilað og stöðvast og ökumenn sem á eftir komu ekki náð að bregðast við í tæka tíð.

Tveir ökumannanna voru fluttir á slysadeild, en allar bifreiðirnar voru fjarlægðar af vettvangi með dráttarbíl.

Þau sem urðu vitni að slysinu eru vinsamlegast beðin um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000, en einnig má senda upplýsingar í tölvupósti á netfangið [email protected]