Fjölskipaður dómur við Héraðsdóm Reykjaness sýknaði karlmann í dag af ákæru um nauðgun og sérstaklega hættulega líkamsárás. Konan sem hann var ákærður fyrir að nauðga hlaut lífshættulega áverka í leggöngum. Hún var flutt á sjúkrahús eftir miklar blæðingar og gekkst þar undir aðgerð. Ríkisútvarpið fjallaði ítarlega um dóminn og þar segir:
Konan og maðurinn sögðu bæði svo frá að þau hefðu hafið samfarir með samþykki beggja og að á einhverjum tímapunkti hefði henni byrjað að blæða mikið. Þau greindi hins vegar á um hvað hefði gerst næst. Konan sagði að maðurinn hefði nauðgað sér og ekkert hirt um andmæli hennar. Hann sagði öll þeirra samskipti hafa verið með vilja beggja.
Dómarar málsins voru þrír og segja í dómi sínum að frásögn konunnar sé óljós og ruglingsleg auk þess sem innra ósamræmis gæti. Einnig þótti þeim með ólíkindum frásögn konunnar um að hún hafi öskrað og kallað á hjálp í 30-45 mínútur án þess að þáverandi tengdadóttir hennar heyrði til þar sem hún var að horfa á sjónvarp. Sú hafði lýst því í fyrri yfirheyrslum að hafa hækkað í sjónvarpinu vegna samfarahljóða. Dómararnir nefna að í fyrstu samtölum við lögreglu og sjúkraflutningamann hafi konan aldrei talað um að sér hefði verið nauðgað heldur um harkalegt kynlíf.
Frásögn tengdadótturinnar fyrrverandi fyrir dómi um að konan hafði sagt sér um nóttina að maðurinn hefði nauðgað henni er sagður í hrópandi andstöðu við fyrri frásögn hennar um að kannast ekkert við nauðgun eða annað ofbeldi.
Óumdeilt er að konan hlaut lífshættulega blæðingu í leggöngum. Kvensjúkdómalæknir sagði afar ólíklegt að þeir væru vegna samfara um leggöng. Hún taldi líklegra að aðskotahlutur hefði valdið þeim og útilokaði ekki fingur. Annar kvensjúkdómalæknir sagði áverkana hafa getað komið til við samfarir um leggöng en ekki hefðbundnar samfarir eða hefðbundið kynlíf. Réttarmeinafræðingur sagði ekki hægt að útiloka að áverkarnir hlytust af samförum um leggöng þó slíkt væri ekki vanalegt. Dómararnir sögðu að ákærði yrði að njóta vafans.