Utanríkisráðherrar Norðurlanda og Eystrasaltsríkja lýstu yfir samstöðu og stuðningi við Úkraínu á fundi sínum í dag. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra tók þátt í fundinum fyrir Íslands hönd.
Utanríkisráðherrar Norðurlanda og Eystrasaltsríkja komu saman til fjarfundar nú síðdegis þar sem innrás Rússlands í Úkraínu og viðbrögð alþjóðasamfélagsins við henni voru í brennidepli. Lýstu ráðherrar ríkjanna yfir samstöðu og algjörum stuðningi við Úkraínu. Í kjölfar fundarins var gefin út sameiginleg yfirlýsing þar sem innrás Rússlands er harðlega fordæmd og gerð er krafa tafarlaust vopnahlé.
Í yfirlýsingunni er einnig lögð rík áhersla á að árás rússneskra stjórnvalda feli í sér skýrt brot á alþjóðalögum, þar á meðal stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna. Þá muni ríkin beita sér fyrir því að þau sem fremji stríðsglæpi verði dregin til ábyrgðar.
„Við erum harmi slegin vegna stöðunnar sem komin er upp í Úkraínu og því djúpstæða óréttlæti sem blasir við úkraínsku þjóðinni. Úkraínskir borgarar sjá nú sig knúna til að berjast fyrir lífi sínu og verja heimili sín og ástvini,“ segir í yfirlýsingunni.
Á fundinum voru ráðherrar NB8-ríkjanna einhuga um mikilvægi þess að bregðast skjótt við með stuðningi í formi mannúðaraðstoðar og hergagna.
„Við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að svara ákalli úkraínsku þjóðarinnar um aðstoð og bregðast við því neyðarástandi sem skapast hefur í landinu vegna grimmdarlegra hernaðaraðgerða Rússa,“ segir utanríkisráðherra.
Sameiginleg yfirlýsing NB8-ráðherranna