,,Með því að samþykkja hann er Ísland að afsala sér fullveldi sínu“
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson spurði forsætisráðherra á Alþingi í dag um þriðja orkupakkann og hvort hún væri sannfærð um að fyrirvarar haldi sem að þingið hefur hugsað sér að setja inn í lögin. Sigmundur Davíð lýsti því einnig yfir í Bítinu í morgun að það væri tilgangslaust hjá ríkisstjórninn að setja inn einhverja fyrirvara vegna þess að þeir munu ekki halda, heldur væri bara litið á þá sem skoðanir ýmissa þingmanna og ráðherra en hefðu ekkert gildi.
Í þriðja orkupakkanum felst regluverk um flutning orku milli landa og um stofnun nýrrar orkustofnunar Evrópu (ACER) en Sigmundur Davíð fó ítarlega yfir málið í ræðu sinnar á flokksráðfundi Miðflokksins um helgina og lýsti hann samningnum sem stórhættulegum fyrir íslendinga. Með því að samþykkja hann væri Ísland að afsala sér fullveldi sínu.
Sigmundur Davíð sagði í morgun að sér liði eins og þegar að Icesave málið kom upp, það væru sömu vinnubrögð varðandi þriðja orkupakkann, hér hefðu sprottið upp erlendir álitsgjafar og fyrirtæki með fé sem að væru að stýra umræðunni. Hugsanlega þyrfti að stofna samtök til þess að veita þessum öflum viðnám, líkt og gert var í Icesave málinu.
Katrín Jakobsdóttir sagði á Alþingi í dag varðandi þriðja orkupakkann, að íslendingar muni hafa áfram forræði yfir orkuauðlindum og að lagning sæstrengs verði ekki samþykktur nema með samþykki meirihluta Alþingis. En Sigmundur Davíð Gunnlaugsson sagði m.a. í morgun að engir íslenskir fyrirvarar muni halda í þeim alþjóðasamningum sem að orkupakkinn mun falla inn í og benti á reynslu Noregs og Liechtenstein, máli sínu til stuðnings.
Tengt efni:
https://www.fti.is/2019/03/04/orkan-a-ekki-ad-vera-audlind-i-thjodareign-segir-radherra-ha/
https://www.fti.is/2019/03/05/samkeppni-i-vinnslu-heildsolu-og-smasolu-a-orkumarkadi-segir-fyrrum-formadur-kjararads-og-nu-formadur-landsvirkjunar/