• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 8. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Íslenska ríkið unir dómi héraðsdóms í máli barna Sævars Ciesielski

77 milljónir greiddar til hvers barns Sævars heitins

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
1. apríl 2022
in Fréttir, Innlent
A A
0
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur ákveðið fyrir hönd ríkisins að una dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í máli tveggja barna Sævars Ciesielski gegn íslenska ríkinu. Sá fyrirvari er þó að ef þau áfrýja áskilur ríkið sér rétt til gagnáfrýjunar. Málið var rætt á fundi ríkisstjórnar í morgun.

Með dómi héraðsdóms þann 24. mars sl. voru bætur barna Sævars Ciesielski, hvors um sig, hækkaðar úr 47,8 milljónum í 77 milljónir. Reynist héraðsdómurinn endanlegur hefur forsætisráðherra í hyggju að bjóða þremur öðrum börnum Sævars, sem ekki áttu aðild að dómsmálinu, sömu hækkun bótafjárhæðar.

Þá leiða jafnræðisrök að því að þar sem ríkið hyggist una niðurstöðu héraðsdóms eigi það sama að gilda um dánarbú Tryggva Rúnars Leifssonar. Mál dánarbúsins er fyrir Hæstarétti og mun forsætisráðherra bjóða fram sátt í málinu áður en til málflutnings kemur.

Landsréttur hækkaði með dómi í desember sl. bætur til Guðjóns Skarphéðinssonar og dánarbús Kristjáns Viðars Júlíussonar.

Með lögum nr. 128/2019 var forsætisráðherra veitt heimild til að greiða bætur vegna sýknudóms Hæstaréttar í Guðmundar- og Geirfinnsmálum. Sú heimild féll úr gildi 30. júní 2020 en ekki er talin þörf á því að framlengja heimildina með lagabreytingu.

Umræða
Share1Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Skrifaði bréf til foreldranna og sagðist vilja deyja í friði

    Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair og krefjast ómerkingar

    124 deilingar
    Share 50 Tweet 31
  • Hægt verði að reka starfsmann án áminningar

    30 deilingar
    Share 12 Tweet 8
  • Laun seðlabankastjóra hækkuðu um 43% – Er með 43 milljónir á ár

    45 deilingar
    Share 18 Tweet 11
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    93 deilingar
    Share 37 Tweet 23
  • Loðnukvóti til trillu í krókakerfi – LS bendir á meint óeðlilegt kvótabrask

    56 deilingar
    Share 39 Tweet 7
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?