Héraðsdómur hefur staðfest eignarrétt manns vegna lausafjárkaupa en hann var ekki skráður eigandi og einnig áttu sér stað fasteignakaup, þrátt fyrir að enginn formlegur kaupsamningur hafi verið gerður við manninn. Sambýliskona og vinkona hennar voru skráðar fyrir eigninni sem ,,leppar“ vegna sérstakra aðstæðna mannsins. Þá dæmir héraðsdómur manninn sem löglegan eiganda lausafjár en hann hafði keypt dýrt fellihýsi sem var einnig skráð á konuna en sannað var að hann stóð einn að mestu leiti undir öllum afborgunum þeirra í sambúðinni.
Í febrúar 2018 kynntust málsaðilar á heilsuhæli NLFÍ í Hveragerði, þar sem þau dvöldu
bæði vegna kulnunar í starfi. Tókust með þeim ástir og ákváðu þau að skilja við maka
sína og taka upp samband. Maðurinn var á þessum tíma læknir og dvaldi
stefnda langdvölum hjá honum ásamt dóttur sinni frá aprílmánuði 2018, en stefnda var þá í veikindaleyfi. Um sumarið starfaði stefnandi í öðru byggðarlagi og heimsótti konan hann þangað. Einnig heimsótti hann, konuna á heimili hennar og fyrrverandi eiginmanns að […] á Akureyri.
Er þau voru í gönguferð kom stefnda auga á fellihýsi, útbúið til fjallaferða, og hafði á orði við stefnanda að hana hafi alltaf langað í slíkt fellihýsi. Varð úr að fellihýsið sem deilt er um í máli þessu var keypt 8. júní 2018. Á þessum tíma stóð maðurinn í skilnaði og eignaskiptum við fyrrum eiginkonu sína. Til þess að fellihýsið blandaðist ekki í eignaskiptin voru kaupin gerð til málamynda með milligöngu A, æskuvinkonu stefndu, og millifærði maðurinn kaupverð fellihýsisins 1.100.000 krónur inn á bankareikning í eigu A, sem síðan greiddi kaupverðið seljandanum sem gaf út sölutilkynningu til A hinn 12. júní 2018.
Í ágúst 2018 millifærði maðurinn 9.000.000 króna á reikning fyrrverandi eiginmanns
stefndu, vegna fyrirhugaðra kaupa stefnanda á helmingshlut hans í íbúð stefndu að […],
á Akureyri. Enginn formlegur kaupsamningur var gerður. Lokagreiðslu, að fjárhæð
1.796.000 krónur, skyldi inna af hendi 15. desember 2018, en til þess kom ekki. Tveimur
árum síðar, 16. desember 2020, greiddi stefnda lokagreiðsluna til fyrrum eiginmanns
síns, sem gaf út afsal til hennar fyrir eignarhlutanum. Af þessu spruttu málaferli sem
lyktaði með því að fyrrum eiginmaður stefndu var dæmdur til að endurgreiða manninum
9.000.000 krónur ásamt vöxtum.
Maðurinn vísar til almennra grunnreglna kauparéttar og eignaréttar um að sá eignist hlut
sem greiði kaupverð hans, sem og lög um lausafjárkaup nr. 50/2000. Einnig vísar hann
til ólögfestra meginreglna íslensks réttar um óvígða sambúð, sbr. einnig 100. gr. laga nr.
20/1991.
Í októberlok 2018 flutti maðurinn inn til stefndu. Sambúðin reyndist stormasöm og eftir
mikið ósamlyndi flutti stefnandi út í apríl 2019. Voru aðilar aldrei formlega skráð í
sambúð.
Maðurinn kveðst byggja kröfu sína á því að hann hafi sannanlega greitt einn allt kaupverð
og sé hann því eigandi þess samkvæmt öllum grundvallarreglum eignaréttar,
samningaréttar og kauparéttar um greiðslu kaupverðs og yfirfærslu eignarréttar við kaup. Ekkert tómlæti var til staðar sem gefi konunni rétt til að sölsa undir sig eignir stefnanda.
Stefnandi hafi haft mun sterkari fjárhagsstöðu. Samkvæmt almennum reglum eigi hann
að taka úr sambúðinni það sem hann hafi keypt. Gögn málsins sýni að stefnandi tók fullan þátt í rekstri fasteignarinnar að […]. Óumdeilt að hann hafi greitt alla veraldlega hluti í
sambandi aðila, svo sem bifreiðakaup, kaup á húsgögnum og öðru innbúi. Þá sýni gögn
málsins að hann hafi greitt stefndu helming kostnaðar vegna fasteignagjalda,
orkureikninga, húsfélags, síma og áhvílandi lána á íbúð stefndu.
Þann 18. júní 2020 ákváðu stefnda og A að skrá fellihýsi sem eign konunnar, án samráðs
við manninn. Komst maðurinn að því 17. október 2020 er hann óskaði eftir því við A að
fellihýsið yrði skráð á hans nafn, en vegna veikinda stefnanda í kjölfar hjartaáfalls
sumarið 2019 og brjóskloss í framhaldinu hafði farist fyrir að hann gengi eftir
skráningunni gagnvart A. Konan synjaði kröfum mannsins um að skrá fellihýsið á hann
og taldi sig eiga tilkall til fellihýsisins sem hluta af uppgjöri við manninn vegna
samvistaslita. Fellihýsið hefur alla tíð verið í vörslum mannsins og er það enn.
Maðurinn kærði málið til lögreglu hinn 16. mars 2021. Hinn 22. nóvember 2021 felldi
lögreglan málið niður þar sem það væri ekki líklegt til sakfellingar. Ríkissaksóknari
staðfesti þá ákvörðun hinn 18. mars 2022. Að sama skapi felldi lögregla niður kæru
stefndu á hendur manninum vegna meints heimilisofbeldis. Þá rak maðurinn aðfararmál á
hendur konunni þar sem hann krafðist þess að fá afhenta lausafjármuni sem hann átti í
íbúð hennar, en hún neitaði honum um aðgang að. Áður en til úrskurðar kom veitti
konan honum aðgang að lausafénu og var málið fellt niður.