Matvælastofnun hefur borist umsókn frá framleiðendahópi á handprjónuðum íslenskum lopapeysum þar sem sótt er um vernd fyrir afurðarheitið „íslensk lopapeysa.“ Handprjónasamband Íslands er í forsvari fyrir umsókninni.
Um er að ræða umsókn um vernd afurðarheitis skv. lögum um vernd afurðarheita sem vísa til uppruna, landsvæðis eða hefðbundinnar sérstöðu.
Sótt er í þessu tilviki um vernd sem vísar til uppruna sbr.4.gr. laga nr. 130/2014. Skv. 2.mgr. 15.gr. sömu laga er heimilt að andmæla fyrirhugaðri skráningu á þessu afurðarheiti og afurðarlýsingu áður en endanleg ákvörðun er tekin um skráningu. Skal það gert innan tveggja mánaða frá birtingu þessarar auglýsingar eða fyrir 29. júní 2019. Andmælum skal skila skriflega til Matvælastofnunar á netfangið mast@mast.is. Afurðarlýsingu er að finna hér fyrir neðan.
Ítarefni
- Umsókn og afurðarlýsing – „Íslensk lopapeysa“
- „Íslenskt lambakjöt“ fyrsta verndaða afurðaheitið hérlendis – frétt Matvælastofnunar frá 12.02.18
- Ný lög um vernd afurðaheita – frétt Matvælastofnunar frá 30.06.15