Laust fyrir miðnætti barst lögreglunni á Norðurlandi eystra tilkynning um að fullorðins manns væri saknað við Laxá í Aðaldal. Maðurinn hafði verið við veiðar í gærdag og hafði ekki skilað sér til baka að veiðitíma loknum eftir kl. 22:00.
Óskað var strax eftir aðstoð frá nálægum björgunarsveitum og síðar voru fengnar björgunarsveitir úr Eyjafirði og austan af landi með sérhæfðan búnað. Þá var óskað eftir aðstoð frá Landhelgisgæslunni með að senda þyrlu norður. Laust eftir kl. 03:00 fannst maðurinn, sem leitað var að, látinn í ánni skammt frá þeim stað sem síðast var vitað um ferðir hans. Ekki er vitað um dánarorsök að svo stöddu.
Lögreglan vill þakka öllum þeim viðbragðsaðilum sem að leitinni komu fyrir þeirra störf.