• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 19. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Bæjarstjórn unga fólksins – ungt fólk til áhrifa

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
1. júní 2021
in Afþreying, Fréttir, Innlent
A A
0
Á vormánuðum stóð öllum nemendum í 10. bekkjum grunnskóla Hafnarfjarðar til boða að taka þátt í hlutverkaleik (Bæj-Ó-Pólý) í fundarsal bæjarstjórnar í Hafnarborg og fá tækifæri til að setja sig í hlutverk bæjarfulltrúa í einn dag. Verkefnið gekk vel, margir nemendahópar sóttu Hafnarborg heim og búið að ákveða að verkefnið verði hluti af fræðslu- og kynningarstarfi Hafnarborgar.  

Verkefninu fylgir fræðslupakki

Undirbúningur fyrir verkefnið fór fram í skólastofu nemandahópanna undir handleiðslu kennara en verkefninu fylgdi fræðslupakki með stuttum spurningaleik og myndbandi sem útskýrir hvernig bæjarstjórn Hafnarfjarðar virkar. Verkefnið sjálft fór fram í Hafnarborg undir handleiðslu Ólafar Bjarnadóttur fræðslufulltrúa safnsins. Að lokinni stuttri leiðsögn um yfirstandandi sýningu skiptu nemendur sér upp í nokkra hópa í fundarsal bæjarstjórnar til þess að fjalla um eigin hugmyndir og tillögur sem lagðar eru fyrir fundinn. Hver hópur ræddi hverja tillögu með það fyrir augum að komast að niðurstöðu með því að hlusta á og meta rök og álit annarra og skiptast á skoðunum. Að lokum fóru nemendur í hlutverk bæjarfulltrúa á bæjarstjórnarfundi og völdu hvaða tillögur væru vænlegastar til að senda áfram til úrvinnslu og skoðunar hjá Ungmennaráði Hafnarfjarðar.

Ýtir undir lýðræðislega virkni barna með áhugaverðum hætti

Í 12. grein Barnasáttmála SÞ er börnum tryggður réttur til að láta skoðanir sínar í ljós í öllum málum er þau varða. Í Bæjarstjórn unga fólksins er unnið með hugmyndir nemendanna sjálfra og í gegnum hlutverkaleik eru málin til lykta leidd með starfsháttum og verkferlum í takt við samþykktir um stjórn Hafnarfjarðarkaupstaðar. Verkefnið stuðlar þannig að lýðræðislegri virkni barna í samfélaginu með virkri tengingu við menningarlíf. Verkefnið fékk styrk úr Barnamenningarsjóði vorið 2020 en vegna takmarkana á samkomum og skólahaldi tókst ekki að hefja það fyrr en vorið 2021. Fyrsti hópurinn tók þátt í verkefninu þann 28. apríl s.l. Næsta vetur er svo gert ráð fyrir að verkefnið verði hluti af almennu fræðslustarfi Hafnarborgar.

Fræðslumyndband: https://hfj.is/sZu6G7

Umræða
Share12Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    125 deilingar
    Share 50 Tweet 31
  • Sviku út 100 milljónir af fólki og fyrirtækjum

    23 deilingar
    Share 9 Tweet 6
  • Verslanir sem ekki taka reiðufé sektaðar um 315 milljónir

    19 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Svartaþoka yfir miðborginni – Þykkur þokubakki við ströndina

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    138 deilingar
    Share 55 Tweet 35
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?