,,Þetta mál gæti orðið heimsfrétt“
Fram kom í fréttum Fréttablaðsins í gær að Þorsteinn Már Baldvinsson sem var stofnandi, eigandi og forstjóri Samherja sé nú orðinn 19. stærsti hluthafi Sýnar með um 0,67 prósenta eignarhlut. Fréttin vakti athygli og undrun margra sem hafa sett sig í samband við Fréttatímann. Sigurjón Þórðarson er einn margra sem hefur tjáð sig um málið:
Íslensk fjölmiðlun gerð að alþjóðlegu athlægi
Engum blöðum er um það að fletta að það er ekki gróðavonin sem rekur Þorstein Má áfram í fjárfestingum á íslenskum fjölmiðlum hvort sem það er í Sýn eða hvað þá í Morgunblaðinu. Það segir auðvitað sína sögu um bullið, að Þorsteinn Már hafi flækt ágætum oddvita Sjálfstæðisflokksins, Eyþóri Arnalds, í að leppa eignarhaldið á Morgunblaðinu í gegnum illræmt skattaskjólsfélag og þar með nánast gert út um pólitískan feril vinsæls tónlistarmanns.
Annars gæti þetta mál orðið heimsfrétt þ.e. að maður sem sætir rannsókn lögregluyfirvalda hérlendis og erlendis vegna stórfelldra alþjóðlegra fjármálaglæpa og mútumála, hafi undirtökin á öllum stærstu fjölmiðlum litla sæta Íslandi og ráði því hvað fari á prent.
https://www.facebook.com/sigurjonthordarson/posts/10220805456619666