Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var, ásamt sjúkraliði, kölluð að húsi í austurborginni um tvöleytið í nótt vegna manns sem sagður var í annarlegu ástandi. Lögregla flutti manninn á Landspítalann en rétt áður en þangað kom missti hann meðvitund og fór í hjartastopp.
![](https://gamli.frettatiminn.is/wp-content/uploads/2020/05/Logr-fors-300x179.jpg)
Endurlífgunartilraunir hófust í kjölfarið en báru ekki árangur og var maðurinn úrskurðaður látinn skömmu eftir komuna á spítalann. Maðurinn var á fertugsaldri.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu gerði embætti héraðssaksóknara viðvart um málið í samræmi við lög.
Ekki er unnt að veita frekari upplýsingar um málið.
Umræða