Karlmaður á þrítugsaldri var í dag í héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í gæsluvarðhald til 7. september á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu lögreglunnar á Höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á innflutningi á um 5.000 töflum af OxyContin.
Tollurinn fann lyfið sem barst hingað í póstsendingu, en um er að ræða 80 mg. töflur. Í framhaldinu voru tveir menn handteknir í aðgerðum lögreglu vegna málsins og annar þeirra úrskurðaður í gæsluvarðhald, eins og áður sagði, en hinn er laus úr haldi.
Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.
Umræða