Veðurhorfur á landinu
Hæg suðlæg eða breytileg átt og víða léttskýjað í dag, en suðaustan 5-13 m/s og stöku skúrir suðvestantil fram eftir degi. Hiti 3 til 8 stig yfir daginn. Breytileg átt 3-10 og úrkomulítið í fyrramálið, en rigning austast, og dálitlar skúrir við vesturströndina. Bætir í úrkomu og fer að rigna á austurhelmingi landsins annað kvöld. Spá gerð: 01.10.2020 05:15. Gildir til: 02.10.2020 00:00.
Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu
Suðaustan 5-10 m/s og smáskúrir, en hægari og bjartviðri síðdegis. Austlæg átt, 3-8 og stöku skúrir á morgun. Hiti 4 til 8 stig yfir daginn.
Spá gerð: 01.10.2020 05:28. Gildir til: 02.10.2020 00:00.
Veðuryfirlit
Yfir NA-landi er 986 mb lægð á leið VSV, en 150 km VSV af Snæfellsnesi er 990 mb lægð sem þokast V. Yfir Skotlandi er 995 mb lægð sem mjakast N.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á föstudag:
Suðlæg eða breytileg átt 3-10 m/s. Bjart með köflum, en dálitlar skúrir við V-ströndina, og fer að rigna um landið A-vert. Hiti 1 til 8 stig.
Á laugardag:
Breytileg átt 3-10 og dálitlar skúrir, en léttir til N-lands eftir hádegi. Hiti 3 til 10 stig yfir daginn, hlýjast NA-til.
Á sunnudag:
Hæg austlæg eða breytileg átt. Skúrir SV-lands, og dálítil rigning A-til, annars bjart að mestu. Hiti 3 til 8 stig.
Á mánudag:
Norðlæg eða breytileg átt og skýjað en úrkomulítið, en léttir til sunnan heiða. Hiti breytist lítið.
Á þriðjudag:
Hæg breytileg átt og úrkomulítið. Hiti 2 til 7 stig.
Á miðvikudag:
Útlit fyrir norðaustanátt með rigningu eða skúrum.