1.desember. Við fögnum 101 árs fullveldi. Dagurinn er líka tileinkaður reykskynjaranum.
Það er ljómandi góð regla að nota einhvern ákveðinn dag til þess að skipta um rafhlöður eins og daginn í dag.
Hvað þarf marga reykskynjara í íbúð? Einn í hvert herbergi sem sofið er í, einn í stofu eða miðsvæðis og mögulega í eldhúsi, þó að það geti stundum orðið ónæði af því við eldamennsku
Munið að prófa reykskynjarann reglulega með hnappnum sem er á honum.
Brunavarðafélag Reykjavíkur mun núna í desember standa fyrir fjáröflun í styrktarsjóð, sölustaðir verða í Kringlunni og Smáralind þar sem seld eru slökkvitæki, reykskynjarar og ýmislegt annað til eldvarna. Eins er hægt að fá góð ráð varðandi staðsetningu reykskynjara og slökkvitækja.
Hér er hlekkur á meiri fróðleik um eldvarnir heimila:
http://shs.is/index.php/eldvarnir-heimila/