Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórann á Suðurlandi, lýsir yfir óvissustigi almannavarna vegna jökulhlaups frá Grímsvötnum. Leiðni og rennsli hafa farið hækkandi í Gígjukvísl sem bendir til þess að vatn úr Grímsvötnum sé byrjað að renna undan jökuljaðrinum.
Miðvikudaginn 24. nóvember síðastliðinn komu fram merki frá Grímsfjalli um að íshellan í Grímsvötnum væri farin að síga. Mannvirki eru ekki talin í hættu en hlaupvatnið mun renna undir brúna yfir Gígjukvísl á þjóðvegi 1.
Fólk er varað við því að fara að upptökum hlaupsins við jökuljaðar vegna hættu á gasmengun.
Umræða