• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 13. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Móðir handtekin vegna tálmunar – Börnin finnast ekki

Edda Björk Arnardóttir

Ákvarðanir í máli Eddu Bjarkar sam­kvæmt lögum

Ákvörðunin hefur verið staðfest bæði af Héraðsdómi Reykjavíkur og Landsrétti

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
1. desember 2023
in Fréttir, Innlent
A A
0

Guðrún Hafsteinsdóttir, dómsmálaráðherra, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna málsins

Guðrún Hafsteinsdóttir. Dómsmálarðherra

Dómsmálaráðherra og ráðuneyti hafa enga aðkomu að meðferð þessara mála og hafa engar heimildir til að beita sér í þeim. Í því máli sem verið hefur til umfjöllunar í fjölmiðlum hefur ríkissaksóknari tekið ákvörðun um að afhenda skuli viðkomandi til Noregs á grundvelli fyrrnefndra laga nr. 51/2016 og hefur sú ákvörðun verið staðfest bæði af Héraðsdómi Reykjavíkur og Landsrétti. Þessi ákvörðun byggir því á íslenskum lögum og niðurstöðu íslenskra dómstóla. Ríkissaksóknari og dómstólar á Íslandi eru sjálfstæðir í störfum sínum og taka ekki við fyrirmælum frá öðrum stjórnvöldum.

Mál sem varða fjölskyldur og börn eru oftast með viðkvæmustu og erfiðustu málum sem stjórnvöld þurfa að fást við. Eru því gerðar ríkar kröfur til þess í lögum að með slík mál fari til þess bær stjórnvöld, sem starfa eftir skýrum lögum og reglum og með það að leiðarljósi að gæta allra viðeigandi hagsmuna í hverju máli fyrir sig. Vegna þess máls sem verið hefur til umfjöllunar í fjölmiðlum er mikilvægt að árétta að þær ákvarðanir sem verið er að framfylgja hafa verið teknar af sjálfstæðum stjórnvöldum á grundvelli laga.

Norræn handtökuskipun byggir á lögum nr. 51/2016 um handtöku og afhendingu manna til og frá Íslandi vegna refsiverðra verknaða á grundvelli handtökuskipunar, en þau lög byggja á samningi milli Norðurlandanna sem undirritaður var þann 15. desember 2005. Áður en samningurinn um norrænu handtökuskipunina tók gildi voru í gildi lög nr. 7/1962 um framsal sakamanna til Danmerkur, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar. Íslensk stjórnvöld hafa því síðan 1962 framselt íslenska ríkisborgara til Norðurlandanna.

Með tilkomu samningsins um norrænu handtökuskipunina urðu þær breytingar á fyrirkomulagi framsals milli Íslands og Norðurlandanna, að komið var á fót einfaldara og skilvirkara fyrirkomulagi um afhendingu sakamanna. Fyrirkomulagið byggist á gagnkvæmri viðurkenningu á ákvörðunum dómsmálayfirvalda viðkomandi ríkja. Þá varð sú breyting á að ríkissaksóknara var falin öll málsmeðferð þessara mála og ákvörðun um hvort orðið skuli við beiðni um afhendingu. Þá ákvörðun er svo alltaf hægt að bera undir íslenska dómstóla. Ríkissaksóknari hefur jafnframt heimild til að fara fram á úrskurð dómstóla um þvingunarráðstafanir, þ.m.t. gæsluvarðhald, til að framfylgja ákvörðunum um afhendingu á grundvelli fyrrnefndra laga. Slíkir úrskurðir hafa ekki áhrif á framkvæmd ákvörðunar um afhendingu.

 

Umræða
Share3Tweet2
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    42 deilingar
    Share 17 Tweet 11
  • Kanada lifir sníkjulífi á Ameríku & Carney wefur örlög þjóðarinnar …

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • 48 dagar verði felldir niður – 20% hærra verð fyrir krókafisk

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    20 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Verr farið með Ísland en Namibíu – Kvótakerfið til Mannréttindadómstólsins

    5 deilingar
    Share 2 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?