• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 23. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Creditinfo sektað um 38 milljónir vegna rangra skráninga

Creditinfo

Creditinfo á svig við starfsleyfi?

Fjöldi fólks hefur misst lánsheimildir og lánstraust hjá lánveitendum vegna breytinga hjá Creditinfo

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
1. desember 2023
in Fréttir, Innlent, Neytendur
A A
0

Meðferð Creditinfo á viðkvæmum persónuupplýsingum um fjárhag einstaklinga gæti farið  á svig við lög og starfsleyfi fjárhagsupplýsingafyrirtækisins, að mati Neytendasamtakanna og VR.

Hafa samtökin því sent Persónuvernd erindi þess efnis og óskað eftir flýtimeðferð. Breytingarnar hafa haft stórkostlegar, víðtækar og skyndilegar afleiðingar fyrir 40% Íslendinga samkvæmt fréttaflutningi. Fjöldi fólks hefur misst lánsheimildir og lánstraust hjá lánveitendum, ekki vegna breytinga á eigin högum, heldur vegna breytinga hjá Creditinfo. Fyrirtækið gætti ekki meðalhófs í aðgerðum sínum, veitti fólki ekki upplýsingar um þær fyrirfram, né gaf kost á andmælum. 

Neytendasamtökin og VR kalla eftir því að stjórnvöld hafi eftirlit með og láti gera úttekt á virkni lánshæfismats Creditinfo. Neytendasamtökin hafa lengi bent á að ekkert eftirlit er með því hvernig   lánshæfismat er reiknað út og hvaða breytur stjórni því nákvæmlega hvers vegna  tiltekinn aðili fellur um flokk svo dæmi sé tekið, nú eða færist upp um flokk.

Við nýlegar breytingar Creditinfo færðust að sögn 40% þjóðarinnar um lánshæfisflokk. Það eitt og sér gefur tilefni til að ætla að pottur sé brotinn í gerð lánshæfismats hjá Creditinfo. Úr því fæst ekki skorið nema með úttekt óháðs aðila og virku eftirliti. Þá virðist fólk ekki hafa verið látið vita um að það yrði fært á milli flokka nú þegar Creditinfo ákveður að breyta um verklag. Fyrir marga neytendur getur það haft alvarlegar afleiðingar að færast niður um lánshæfisflokk. Benda samtökin á að framúrskarandi fyrirtæki hefði sýnt þá kurteisi að láta fólk vita með góðum fyrirvara og gefið fólki kost á að andmæla.

Neytendasamtökin og VR vekja athygli á að nýlega sektaði Persónuvernd Creditinfo, sem var gert að greiða tæpar 38 milljónir króna fyrir að hafa skráð fólk ranglega á vanskilaskrá. Neytendasamtökin og VR eru að kanna bótarétt þess fólks og hvetja fólk sem var skráð að vanskilaskrá vegna smálána að setja sig í samband við Neytendasamtökin (ns@ns.is).

Samkvæmt 2. mgr. 12. greinar reglugerðar 606/2023 um vinnslu upplýsinga um fjárhagsmálefni og lánstraust ber fyrirtækinu að veita upplýsingar um vægi einstakra breytna við útreikning á líkindum í skýrslu um lánshæfi hans og þau rök sem liggja þar að baki. Því benda samtökin fólki á að biðja um þessi gögn. Hægt er að senda álíka bréf og þetta til creditinfo@creditinfo.is:

Góðan dag

Ég óska eftir öllum upplýsingum sem Creditinfo notar til að reikna út lánshæfismat mitt, þar með talið upplýsingar um vægi einstakra breytna við útreikning á líkindum í skýrslu um lánshæfi mitt og þau rök sem liggja þar að baki.
Virðingarfyllst,
(Nafn, kennitala)

Neytendasamtökin og VR hvetja neytendur að afla allra gagna sem þau geta og vista, þ.m.t. um eldri skráningu á vanskilaskrá (ef við á), afrit af hinu nýja lánshæfismati (og eldra), öllum samskiptum við Creditinfo o.s.frv. Telji neytendur á sér brotið geta þeir leitað til Neytendasamtakanna með því að senda umræddu gögn til skoðunar.

Sé þessi vinnsla Creditinfo ekki óheimil munu Neytendasamtökin beita sér fyrir reglugerðar- og lagabreytingum eftir því sem við á. Þá minna samtökin á að vinnsla lánshæfismats þarf að vera málefnaleg og gefa rétta mynd af lánshæfi. Lækkun lánshæfis sem byggir ekki á réttlátum, málefnalegum og áreiðanlegum gögnum gefur ekki rétta mynd af stöðu og lánshæfi.

Umræða
Share2Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Rannsókn á andláti

    353 deilingar
    Share 141 Tweet 88
  • Lýst eftir Hlyni Gíslasyni

    58 deilingar
    Share 23 Tweet 15
  • Spillingin þrífst hjá Sjöllunum – Hagsmunir kvótaerfingja þingmanna varðir á Alþingi

    17 deilingar
    Share 7 Tweet 4
  • Risagjaldþrot Heima ehf. – Heimahúsið í sama húsnæði

    36 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Miljarð króna gjaldþrot á fasteign sem hýsir Heimahúsið – Engar eignir fundust

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?