• 442.is
  • Veiðin.is
Fréttatíminn.is
Ekkert fannst
View All Result
  • Innskráning
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsendar greinar
  • Afþreying
  • Veiðin.is
Auglýsingar
Hafa samband
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsendar greinar
  • Afþreying
  • Veiðin.is
Ekkert fannst
View All Result
Fréttatíminn.is
Ekkert fannst
View All Result
AUGLÝSING

,,Svo virðist sem kuldaboli ætli að sitja sem fastast í dag og gert er ráð fyrir að það verði ansi kalt''

Ritstjórn Fréttatímans eftir Ritstjórn Fréttatímans
2. febrúar, 2019
0 0

,,Svo virðist sem kuldaboli ætli að sitja sem fastast í dag og gert er ráð fyrir að það verði ansi kalt á landinu í dag. Á morgun verður austlæg átt, kaldi sunnantil og él, einkum á S- og SA-landi og dregur þá verulega úr frostinu en fyrir norðan verður hægur vindur og bjart og þar herðir ennfrekar á frostinu og ekki er ólíklegt að tölur undir 20 stigum verði nokkuð áberandi fyrir mesta kulda þar.  Útlit fyrir fremur aðgerðalítið veður á mánudag en dregur úr frosti víðast hvar þó.
Á þriðjudag gera spár ráð fyrir að hláni nokkuð víða á sunnanverðu landinu með rigningu eða slyddu en fyrir norðan yrði hitastigið nálægt frostmarki. Síðan taka við dagar þar sem búast má við hita nálægt frostmarki, hvoru megin við frostmark það verður, kemur líklega í ljós er nær dregur og ákvarðast því úrkomutegundin mikið til af hitastiginu.” Segir veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands.

Veðurhorfur á landinu

Breytileg átt 3-8 og bjart veður í dag, en norðvestan 8-13 og él við A-ströndina fram eftir degi. Frost yfirleitt 5 til 15 stig. Austan 8-13 S-til á landinu á morgun, snjókoma með köflum og minnkandi frost. Hægari og þurrt fyrir norðan, talsvert frost.
Spá gerð: 02.02.2019 10:02. Gildir til: 04.02.2019 00:00.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á mánudag:
Austan 3-8 og úrkomulítið, en 10-15 m/s og él við S-ströndina síðdegis. Frost 0 til 13 stig, mildast syðst.
Á þriðjudag:
Hvöss austanátt. Slydda eða rigning S-til á landinu og hiti 1 til 5 stig. Dálítil snjókoma norðan heiða og hiti kringum frostmark síðdegis.
Á miðvikudag:
Austlæg átt og rigning eða slydda á Vestfjörðum og við N-ströndina, en skúrir SA- og A-lands. Hiti 0 til 5 stig.
Á fimmtudag:
Austan- og norðaustanátt. Víða dálítil él, en rigning eða slydda SA-lands. Hiti 0 til 5 stig, en vægt frost í innsveitum.
Á föstudag:
Norðaustlæg átt og stöku él N- og A-lands, en líklega slydda eða rigning SA-til á landinu seinni partinn. Hiti kringum frostmark.
Spá gerð: 02.02.2019 08:37. Gildir til: 09.02.2019 12:00.

DeilaTweetDeila
Ritstjórn Fréttatímans

Ritstjórn Fréttatímans

Auglýsing

Mest lesið í dag

  • Á bráðamótöku með stunguáverka eftir líkamsárás

    0 deilingar
    Deila 0 Tweet 0
  • Brýnt að jafna kynjahlutföll á skipum

    0 deilingar
    Deila 0 Tweet 0
  • Así vill koma í veg fyrir þrælahald og mannsal á íslenskum farskipum

    46 deilingar
    Deila 46 Tweet 0
  • Íslensk útgerðarfyrirtæki eru þurfalingar, ómagar og afætur í íslensku þjóðfélagi

    474 deilingar
    Deila 474 Tweet 0
  • Óréttlæti og valdníðsla

    43 deilingar
    Deila 43 Tweet 0
Fréttatíminn.is

Fréttatíminn er óháður miðill

Fréttatíminn © 2020

Ekkert fannst
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsendar greinar
  • Afþreying
  • Veiðin.is

Fréttatíminn © 2020

Velkomin/n!

Skráðu þig inn hér fyrir neðan

Gleymt lykilorð?

Búa til aðgang!

Fill the forms bellow to register

Það þarf að fylla inn alla reiti. Innskráning

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Innskráning
Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?